Gjafir í Garðabænum

17.07.2011

Blikar voru einstaklega gjafmildir í Garðabænum þegar þeir mættu heimamönnum í Stjörnunni í Pepsí-deildinni í fyrsta leik 11. Umferðar. Eftir að hafa náð vænlegri stöðu 1:2 og átt upplögð færi til að bæta við forystuna gáfu okkar piltar eftir á lokakaflanum og töpuðu 3:2. Það er sárgrætilegt að enn einn leikinn duga ekki tvö mörk til að ná sigri i deildinni.

Blikar virkuðu taugaóstyrkir fyrstu mínútur leikins og á smá kafla áttu Stjörnumenn þrjú upplögð færi til að komast yfir. Sem betur fer nýttu þeir bara eitt af þessum færum þökk sé frábærri markvörslu Ingvar Más Kale. Smám saman komust okkar piltar inn í leikinn. Arnar Már nýtti vel hraða sinn á sínum gamla heimavelli og lagði meðal annars upp dauðafæri fyrir Dylan Jakob Mcalister. Ástralinn fór illa að ráði sínu og lét Ingvar Jónsson verja frá sér. En nokkrum mínútum síðar tók Arnar Már snöggt innkast, Olgeir skallaði vel inn í teiginn og þar kom Jakob og kláraði færið vel.

Í síðari hálfleik voru Blikar ívið sterkari og Stjörnumenn settu boltann í eigið mark eftir fasta fyrirgjöf frá Rafni Andra. Kættust nú Blikar í stúkunni  og sáu fram á huggulegt laugardagskvöld með rauðvíni og kertaljós í blíðunni í Kópavogi. En þá kom gjafmildin upp í okkar drengjum. Hraðferð upp hægra kantinn skilaði skallamarki hjá Garðari Stjörnumanni og þar með voru leikar jafnir. Í uppbótartíma var hræðilegur misskilningur í vörn Blika þess valdandi að Garðar skoraði sigurmarkið fyrir þá bláklæddu.

Erfitt er henda reiður á slöku gengi okkar liðs. Miðjan nær sér ekki á strik og fljótandi spilið sem yljaði knattspyrnuáhugamönnum í fyrra er vart sjáanlegt. Vörnin er óörugg en fær ekki nægan stuðning frá miðjumönnunum. Í fyrri hálfleik var allt of mikið kýlt fram á Dylan í stað þess að láta boltann ganga eftir vellinum. Það gekk betur í síðari hálfleik og með smá heppni hefðum við getið skorað þrjú mörk í leiknum. En það gekk ekki eftir og við sígum niður fyrir miðju i deildinni.

Bestu menn liðsins voru Arnar Már Björgvinsson, sem átti líklega sinn besta leik síðan hann gekk til liðs við Blikaliðið og svo snillingurinn Ingvar Már Kale í markinu. Aðrir leikmenn liðsins eiga að geta spilað betur. Það sem manni finnst líka vanta er leikgleði. Það þarf að dæla smá gleði í strákana. Þá geta þeir spilað miklu betur enda veitir ekki af nú þegar næsti leikur er gegn hinu geysisterka liði Rosenborgar frá Þrándheimi. Munum það Blikar; meiri gleði = betri árangur

AP





<- Til baka