Ágætu Blikar, í kvöld kl. 19.15 hefst Pepsí-deildin hjá Blikaliðinu eftir langt hlé vegna leikja hjá U-21 árs landsliðinu. Það stendur líka mikið til. Ölgerðin stendur fyrir uppákomu í leikhléi. Hið svokallaða ,,Heita sæti".
Einn harðasti stuðningsmaður Breiðabliks, Egill Gillz Einarson verður í „Heita sætinu“ á leiknum á móti Keflavík í kvöld. Heita sætið er stórfín skemmtun sem boðið er upp á í hléi valinna leikja, þar sem yngri vallargestir reyna að hitta í skotskífu sem sprengir 25 lítra vatnsblöðru. Undir blöðrunni er „Heita sætið“ og nokkrir hugrakkir hafa þegar fengið yfir sig gusur í sumar. Nú er komið Blikum, og það er enginn annar en Gillz sem mun setjast í „Heita sætið á mánudag, þegar Keflvíkingar koma í heimsókn. Ungir Blikar fá þá tækifæri til þess að vökva hetjuna sína svo um munar. Takist ungum skyttunum á vellinum að bleyta upp í Gillz, verður það ekki eingöngu til skemmtunar, því Pepsi hefur heitið yngri flokkum Blika heilu bretti af Pepsi gangi þetta eftir. Áhorfendur eru því hvattir til þess að fylgjast vel með í hléi þegar Pepsi skotið fer fram.
Gillz fer ekki tómhentur út sætinu því fyrir hetjudáðina fær hann eintak af ritinu 100 ára afmæli íslandsmótsins í knattspyrnu, sem kom út fyrir skemmstu. Bókin hefur að geyma mikinn fróðleik um íslenska knattspyrnu, allt frá 1870 er bolti skoppaði í land frá bresku skipi í Reykjavíkurhöfn og þegar boltinn fer að rúlla fyrir alvöru árið 1912, en þá var fyrsta Íslandsmótið í knattspyrnu haldið og því heil öld liðin frá þeim merka atburði. Þetta er fyrra bindið í sögunni en hið síðara er væntanlegt í nóvember.
Blikaklúbburinn