Ágætu Blikar,
Laugardaginn næstkomandi fer fram á Kópavogsvelli síðasti leikur meistaraflokks karla í Pepsi-deildinni í ár. Grænu drengirnir mæta þá bláklæddum Stjörnumönnum sem hafa verið sprækir í ár. Þeir grænu ætla að enda tímabilið með sæmd og óska eftir stuðningi þínum.
Það verður frítt á völlinn fyrir alla sem mæta í einhverju grænu og þú ert beðinn um að láta ekki þitt eftir liggja og mæta á Kópavogsvöll kl. 14 á laugardaginn!
Getraunastarfið hefst einnig á laugardaginn kl. 10.00 í Smáranum. Það er skemmtilegur vettvangur til að hitta aðra Blika og styrkja félagið í leiðinni.
Á laugardagskvöldið verður svo uppskeruhátíð knattspyrnudeildar í Smáranum. Miðar í mat eru seldir í Smáranum en frítt verður inn eftir kl. 23.30.
Blikar mega því taka laugardaginn frá og vera grænir allan daginn!
Knattspyrnudeild Breiðabliks