BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Fjölnir - Breiðablik í Pepsí-deildinni sunnudaginn 17. júlí kl. 20:00

15.07.2016
Síðasti leikur Blikaliðsins í fyrri umferð Pepsí-deildarinnar árið 2016 er á Fjölnisvelli á sunnudaginn kl.20.00. Við eigum ágætar knattspyrnuminningar frá þessum velli því þar lékum við síðasta leik Íslandsmótsins árið 2015 og lögðum þá gulklæddu að velli 0:2 í sögufrægum leik. Glenn og Andri Rafn settu mörkin. Í leiknum bættum við Blikar stigamet okkar í efstu deild og tryggðum okkur silfur á Íslandsmótinu  Sjá umfjöllun um leikinn hér. Blikaliðið hefur hökt í síðustu leikjum en er þetta ekki fínn tími til að snúa blaðinu við? Við höfum aldrei tapaði fyrir Fjölni í opinberum leik og ætlum ekki að fara að gera það núna! Strákarnir hafa æft vel undanfarna daga og nú er Árni Vilhjálmsson orðinn löglegur með Blikaliðinu. En liðið þarf öflugan stuðning frá áhorfendum. Stuðningsmannavefurinn Blikar.is hvetur stuðningsmenn og þá sérstaklega Kópacabana hópinn að fjölmenna í Grafarvoginn til að styðja Blikaliðið til sigurs!
 
Leikur liðanna á Extra vellinum í Grafarvogi á sunnudaginn klukkan 20.00 er átjándi opinberi leikur liðanna frá upphafi. Fyrsti keppnisleikur liðann var í Deildarbikarnum árið 2003. Liðin voru saman í 1. deildinni árin 2004 og 2005. Fyrsta viðureign liðanna í efstu deild var árið 2008. Heilt yfir eru liðin búin að keppa 17 sinnum opinberlega. Breiðablik hefur vinninginn með 12 sigra, 5 jafntefli og ekkert tap. Breiðablik hefur skorað 34 mörk gegn 15 mörkum Fjölnismanna.
 
Viðureignir liðanna í efstu deild eru átta. Árið 2008 vinna Blikar 1-2 í miklum rokleik í Grafarvoginum með hörku marki  Blikans Árna Kristnis Gunnarssonar en Árni Kristinn lék með Fjölnismönnum árin 2012-2014. Blikar vinna svo seinni leikinn á Kópavogsvelli 4-1 með mörkum frá Guðmundi Kristjánssyni, Nenad Zivanovic, Prince Rajcomar. Eitt markanna var sjálfsmark. Árið 2009 var markalaust jafntefli í heimaleiknum en Blikar vinna seinni leikinn í Grafarvogi 0-2 með mörkum frá Kidda Steindórs og Gumma P. Fjölnisliðið fellur 2009 en er komið upp aftur árið 2014. Báðir leikirnir 2014 enduðu með jafnteflum; 2-2 í Kópavoginum og 1-1 í Grafarvoginum. Mörk Blika skoruðu: Árni Vilhjálmsson 2 mörk og Davíð Kristján Ólafssson 1 mark. Mark Davíðs á Kópavogsvelli var sérlega vel gert og fagnið í kjölfarið var ekki síður glæsilegt!
 
Heimaleikurinn 2015 vannst 2-0 með mörkum frá Oliver Sigurjónssyni og fyrirliðanum Arnóri Sveini Aðalsteinssyni. Mark Olivers var glæsilegt, algjörlega óverjandi, aukaspyrnumark. Markið var jafnframt fyrsta mark Olivers í efstu deild. Gísli Eyjólfsson kom inn á undir lok leiks í sínum fyrsta efstu deildar leik. Fyrir leikinn fékk Kristinn Jónsson viðurkenningu fyrir 200 opinbera leiki með Breiðabliki. Gunnleifur Gunnleifsson, þá 39 ára 364 daga gamall, var valinn maður leiksins. Hann skrifaði síðan undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik á fertugsafmælinu daginn eftir. Nánar hér um heimaleikinn.
 
Árangur okkar í efstu deild gegn Fjölni er því 5 sigrar, 3 jafntefli og ekkert tap í 8 leikjum. Grafarvogurinn hefur verið gjöfulli en Kópavogsvöllur í stigum eða 83% (3 sigrar, 1 jafntefli) á móti 67% (2 sigrar, 2 jafntefli) á Kópavogsvelli.
 
Fjölnismenn eru hins vegar með gríðarlega sterkt lið núna og hafa staðið sig frábærlega í sumar. Liðið er nú í öðru sæti  með 19 stig, 2 stigum á eftir FH, og 11 mörk í plús. Fjölnir getur náð toppsætinu af FH með sigri tapi FH í Eyjum á laugardaginn.
 
Við þurfum hins vegar á sigri að halda til að færast ekki neðar í töflunnu. Blikar eru fyrir leikinn í fimmta sæti með 16 stig og 2 mörk í plús. Með sigri á sunnudaginn jafna Blikar Fjölni að stigum þannig að leikurinn er ótrúlega mikilvægur.
 
Þess má geta að Kristófer Sigurgeirsson, aðstoðarþjálfari meistraflokks karla, ætti að þekkja vel til Fjölnisliðsins því hann var aðstoðarþjálfari liðsins árin 2006-2008, ásamt því að spila með liðinu árið 2006, og svo aðstoðarþjálfari hjá núverandi þjálfara Ágústi Gylfasyni 2012-2014. 
 
Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!
 
P.S. Minnum á að Símamótið 2016 hefst í dag á félagssvæði Breiðabliks. Sjá upplýsingar um mótið hér.

Til baka