Það voru 1912 manneskjur sem voru mættar á Kópavogsvöllinn til að fylgjast með uppgjöri Íslandsmeistara og Bikarmeistara ársins 2010. Það er ljóst að bæði þessi lið fá eigi titil til að skarta í félagsaðstöðu sinni þetta árið.
Byrjunarlið Blika var svo skipað:
Kale
Jökull - Arnór - Þórður Steinar - Kiddi Jóns
Finnur - Gummi
Rafn Andri - Olli - Kiddi Stein
Dylan
Fyrstu 20 mínúturnar voru Blikar sterkari og fengu nokkur ákjósanleg færi en óheppnir að koma ekki boltanum fram hjá Gulla í FH markinu. Rafn Andri fékk fínt færi en skaut boltanum yfir, hann var svo aftur nálægt því að skora en skallaði boltanum stöngina. Kiddi Jóns átti einnig þrususkalla að markinu sem Gunnleifur varði ágætlega.
Atli Guðna var einnig óheppinn að skora ekki snemma leiks þegar hann komst einn á móti Kale í markinu en Kale gerði vel og varði og Atli skaut boltanum svo framhjá eftir að hafa fengið frákastið til sín.
Á 30 mínútu skoruðu FHingar sigurmark leiksins þegar Emil Pálsson og Matthías Vilhjálmsson spiluðu sig í gegnum flata Blikavörnina og Emil kláraði með því að þruma boltanum fram hjá Ingvari í markinu.
Fram að þessu hafði Blikaliðið verið betri aðilinn í leiknum og því miður var markið vendipunktur í leiknum því FH voru betri næsta klukkutímann eða svo.
Lítið gerðist þar til Junior-inn flautaði til hállfeiks og gengu liðin útaf í blíðskaparveðri. Þegar liðin komu til leiks eftir hlé höfðu dökkleit ský hrannast yfir Kópavogsvöll og engu líkara en Blikaliðið hefði þau öll yfir sér. Eftir 3. mínútna leik í síðari hálfleiknum fengu FH ingar algjört dauðafæri en á einhvern óskiljanlegan hátt skaut Atli Guðna fram hjá.
Það var ekki mikill hressleiki yfir leiknum og gerðu Blikar nokkrar skiptingar til að reyna lífga upp á hann. Árni Vilhjálms kom inn fyrir Olgeir, Yeoman kom inn fyrir Jökul og að lokum kom Viktor Unnar inn fyrir Rafn Andra. Allt frekar sóknarþenkjandi leikmenn og bjóst maður við auknum krafti í sóknarleik liðsins. En allt kom fyrir ekki og voru FHingar oft og tíðum með Blikana inn í stórum reit og létu boltann ganga sín á milli. Þórður Steinar komst einna næst því að koma boltanum fram hjá Gunnleifi er hann átti skalla á 94 mínútu en boltinn fór naumlega fram hjá.
Það var ekki ýkja margt gríðarlega jákvætt við þennan leik Breiðabliksmanna, jákvætt var að hann var ekki jafn slakur og gegn KR í síðasta leik. Neikvætt var að við töpuðum þriðja leiknum í röð og höfðum sætaskipti við Þórsara sem unnu sinn leik. Þá er manni alveg hulin ráðgáta hvað hefur orðið um spilið sem Blikar hafa sýnt undanfarin ár. Það er ekki vænlegt til árangurs að láta boltann ganga milli manna í öftustu línu og flengja honum svo fram í von og óvon um að Dylan flikki honum áfram á næsta mann. Ráðleysi einkennir leik liðsins þessa dagana og það er vonandi að Ólafur nái að finna sína leikmenn á þeim stað þar sem þeir eiga að vera, í toppbaráttu. Það hefst einungis ef menn eru tilbúnir að leggja sig 100% fram og berjast af öllum lífsins sálarkröftum.
Næsti leikur er gegn Grindavík suður með sjó og þar munum við leitast eftir fyrsta útisigrinum í ár. Það er 6 stiga leikur þar sem Grindvíkingar geta jafnað okkur að stigum með sigri en við komumst þægilega fram úr þeim með sigri. Það er því nákvæmlega ekki neitt í boði en sigur á sunnudaginn og hvetjum við alla til að mæta á þann leik og styðja strákana til sigurs.
Áfram Breiðablik
GMS