BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik - Fjölnir í PEPSI mánudaginn 31. júlí kl. 19.15

30.07.2017
Næsti leikur Blika er mánudaginn 31. júlí kl. 19:15 gegn Fjölni sem er á miklu skriði um þessar mundir. 
 
Leikurinn er á Kópavogsvelli og ljóst að sá leikur þarf nauðsynlega að vinnast ef þetta leiktímabil á að skila áþreifanlegum árangri.  
 
Tölfræði.
 
Leikur Breiðabliks og Fjölnis á Kópavogsvelli á mánudagskvöld verður 21.opinberi leikur liðanna frá upphafi. Fyrsti mótsleikur liðanna var í Deildarbikarnum árið 2003. Árin 2004 og 2005 léku bæði lið í næst efstu deild og vann Breiðablik allar 4 viðureignirnar. Nánar hér.  
 
Fyrsta viðureign liðanna í efstu deild kom árið 2008 og var sigurleikur Blika. Nánar hér.
 
Heilt yfir hafa liðin spilað 20 mótsleiki upphafi. Breiðablik leiðir með 13 sigurleiki, jafnteflin eru 5 og  Fjölnismenn hafa unnið 2 leiki. Fyrra tap Blika fyrir Fjölni í mótsleik var 0-3 tapið í síðasta leiknum okkar í Pepsi-deildinni á Kópavogsvelli í október í fyrra. Blikar töpuðu svo aftur í næsta mótsleik gegn Fjölni. Sá leikur var í Grafarvoginum í 2. umferð Pepsi-deildarinnar í byrjun maí á þessu ári og tapaðist 1-0
 
Efsta deild.
 
Sagan fellur með Blikum því í 11 efstu deildar viðureignum liðanna leiða Blikar með 6 sigra gegn 2 sigrum Fjölnismanna.
 
2008 - vinna Blikar 1-2 í miklum rokleik í Grafarvoginum með hörku sigurmarki frá Blikanum Árna Kristni Gunnarssyni. Árni lék svo með Fjölni árin 2012-2014. Blikar vinna seinni leikinn á Kópavogsvelli 4-1 með mörkum frá Guðmundi Kristjánssyni, Nenad Zivanovic, Prince Rajcomar og eitt markanna var sjálfsmark.
 
2009 - gera liðin 0-0 jafntefli á Kópavogsvelli en Blikar vinna seinni leikinn 0-2 með mörkum frá Kidda Steindórs og Gumma P. 
 
Fjölnismenn falla haustið 2009 en eru komnir aftur meðal þeirra bestu 2014. 
 
2014 - enda báðir leikirnir jafntefli; 2-2 í Kópavoginum og  1-1 í Grafarvoginum. Mörk Blika í þessum viðureignum skoruðu: Árni Vilhjálmsson 2 mörk og  Davíð Kristján Ólafssson 1 mark, en mark Davíðs var sérlega glæsilegt og fagnið hans ekki síður.
 
2015 - Blikar vinna báða leikina 2-0. Fyrri leikurinn var á Kópavogsvelli. Mörk Blika skoruðu Oliver Sigurjónsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Gísli Eyjólfsson kom inn á í leikum í sínum fyrsta efstu deildar leik. Gunnleifur Gunnleifsson var valinn maður leiksins. Gunnleifur varð fertugur daginn eftir leikinn og nýtti tækifærið til að skrifa undir nýjan samning við Breiðablik. Nánar um það hér. Síðari leikur liðanna árið 2015 var í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn vannst 0-2 með mörkum frá Jonathan Glenn, markið sem hann skoraði 8. markið hans í 9 leikjum með Blikum, og Andri Rafn Yeoman innsiglaði sigurinn með marki í uppbótartíma. Olgeir Sigurgeirsson lagði skóna á hilluna frægu eftir leikinn. Olli átti nú eftir að taka fram skóna ásamt því að sinna þjálfun en hann er núna aðstoðarþjálfari hjá okkur. 
 
2016 - í júlí vinna Blikar öruggan 3-0 sigur í fyrri leiknum sem var á heimavelli Fjölnismanna í Grafarvoginum Mörkin skoruðu Andri Rafn Yeoman, Gísli Eyjólfs og Daniel Bamberg. Gunnleifur varði vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks í stöðunni 0-2. Árni Vilhjálmsson lék sinn fyrsta leik með Blikum, eftir að hann kom á ný til félagsins í félagaskiptaglugganum 15. júlí, og gerði sér lítið fyrir og átti allar 3 stoðsendingar leiksins. Leikurinn var 250. mótsleikur Arnórs Sveins Aðalsteinssonar með Breiðabliki. Síðari leiknum, sem var jafnframt lokaleikurinn í fyrra, tapa Blikar svo 0-3. 
 
2017 – Blikar töpuðu fyrr viðureign liðanna í vor 0-1. 
 
Leikurinn við Fjölni á mánudaginn er á Kópavogsvelli og ljóst að sá leikur þarf nauðsynlega að vinnast ef þetta leiktímabil á að skila áþreifanlegum árangri.  
 
Leikurinn hefst klukkan 19:15
 
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka