Breiðablik – Stjarnan Pepsídeild kvenna

13.07.2011

Í gær mættu Blikastelpurnar Stjörnunni í leik í pepsídeildinni á Kópavogsvelli.  Fyrir leikinn var Stjarnan í öðru sæti deildarinnar en Blikarnir í því sjötta.  Það var hins vegar ekki að sjá á leik liðanna, allavega ekki í fyrri hálfleik.  Blikarnir byrjuðu af krafti og stjórnuðu leiknum í raun frá fyrstu mínútu.  Þær voru fljótar og ferskar og kannski má segja að helsta vandamálið hafi verið að þær voru full ákafar enda fengu þær dæmdar á sig ófáar rangstöðurnar.  Greta Mjöll átti færi strax á annari mínútu leiksins og eftir það fylgdu nokkur góð færi Blika og á lokamínútu hálfleiksins komst Fanndís ein innfyrir vörn Stjörnunar en skot hennar fór yfir.  Stjörnustelpurnar áttu varla færi í fyrri hálfleik en reyndu töluvert að stinga inn fyrir börn Blika þar sem Birna markvörður sá við þeim öllum af miklu öryggi.

Í hálfleik gengu stuðningsmenn Blika því nokkuð bjartir í kaffið sannfærðir um að við myndum klára málið í síðari hálfleik.  Annað kom þó á daginn, því eftir nokkuð jafnar fyrstu mínútur þá skoraði Stjarnan á 52 mínútu og í heildina séð var það nokkuð gegn gangi leiksins.  Eftir þetta fylgdu ótrúlegar mínútur þar sem Störnustúlkur bættu við tveimur mörkum og staðan skyndilega orðin 0-3.  Eftir þetta datt botninn úr leiknum og það var síðan á 80 mínútu sem gestirnir fengu víti sem Blikinn Ásgerður Stefanía Baldursdóttir skoraði úr þó svo að Birna væri ekki fjarri því að verja skotið.

Margt jákvætt sást í leik okkar Blika sérstaklega fyrstu 50 mínúturnar en þó eins og loðað hefur við liði í sumar þá þoldu þær illa mótlætið sem þær mættu þegar Stjarnan skoraði.  Það er verðugt verkefni fyrir hina nýju þjálfara að breyta en augljóst er að ferskari vindar eru farnir að blása að nýju í Smáranum.   Næsti leikur er gegn nýliðum Þróttar sem hafa verið að standa sig ágætlega í sumar og þar þýðir ekkert annað en að standa í lappirnar og landa þremur stigum.





<- Til baka