Breiðablik og Stjarnan í meistaraflokki karla leika til úrslita í Fótbolti.net mótinu á laugardaginn í Kórnum klukkan 12:30. Stjarnan varð efst í sínum riðli með 7 stig en okkar drengir tryggðu sér efsta sætið í okkar riðli með 5 stig.
Síðasti leikur okkar á Íslandsmótinu 2011 var við Stjörnuna á Kópavogsvelli – leikur sem Breiðabliks vann með einu marki í sjö marka leik. Fyrri leikur liðanna tapaðist með einu marki í fimm marka leik. Það má því gera ráð fyrir markasúpu í Kórnum í hádeginu á laugardaginn.
Við hvetjum alla til að mæta.
Áfram Breiðablik !