Breiðablik – Rosenborg í forkeppni Mestaradeildar Evrópu 2011

20.07.2011

Við bjóðum mótherja okkar frá Þrándheimi sérstaklega velkomna í Kópavoginn, vinabæ Þrándheims. Mótherjar Breiðabliks Mótherjar okkar í dag er engir nýgræðingar í Evrópukeppnum og hafa tekið þátt frá árinu 1965 er þeir léku sinn fyrsta leik í Evropukeppni gegn KR. Rosenborg vann sinn fyrsta stóra titiil þegar þeir urðu bikarmeistarar 1960 og síðan hefur félagið landað slíkum til viðbótar og ennfremur unnið norsku deildina 22 sinnum, þar af 13 ár í röð á árunum 1992 – 2004. Rosenborg tók þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu ellefu sinnum á tólf árum frá 1995 – 2006, þar af átta sinnum í röð sem var met þar til Manchester United sló það árið 2004. Á þessum velmektarárum bar Rosenborg meðal annars sigurorð af liðum á borð við AC Milan, Juventus og Real Madrid. Óhætt er að segja að að Rosenborg sé yfirburðalið norskrar knattspyrnu og hafi verið það síðan Nils Arne Eggen tók við liðinu á ný árið 1988. Núverandi þjálfari er Jan Jönsson. Rosenborg á og rekur sinn eigin heimavöll, hinn glæsilega Lerkendal Stadion, sem tekur 21.166 gesti í sæti og er með mjög góða heimasiðu sem vert er að kíkja á.

ÁFRAM BREIÐABLIK !





<- Til baka