Breiðablik-KR

28.07.2011

Það blés ekki byrlega á Kópavogsvelli síðastliðið þriðjudagskvöld þegar Blikastelpurnar mættu þeim röndóttu úr vesturbænum í mjög mikilvægum leik fyrir bæði lið.  Með sigri gátu Blikarnir skilið sig aðeins frá neðstu liðunum en tap  fyrir KR-ingaþýddi bullandi fallbaráttu framundan.  Eins og áður sagði þá var ljóst að vindurinn ætlaði sér stórt hlutverk á vellinum, því það var engu líkara en að kominn væri miður september og við í brjálaðri hauslægð. 

Blikarnir byrjuðu leikinn mun betur og voru betri allan fyrri hálfleikinn.  Greta átti gott færi strax á 16 mínútu leiksins en slúttaði illa og Íris í marki KR átti ekki í neinum vandræðum með að verja.  Hún þurfti svo að taka á honum stóra sínum nokkrum mínútum seinna þegar Greta átti stórgott skot sem virtist vera að smella í samúel en Íris náði á einhvern óskiljanlegan hátt að bjarga. Blikar áttu síðan nokkur færi eftir þetta og  Fanndís það besta af þeim en ekki náðu þær að skora.  Það var síðan á 32 mínútu sem Greta átti gott hlaup upp kantinn og gaf fyrir markið þar sem Fanndís var réttur maður á réttum stað og kom okkur Blikum verðskuldað í 1-0.  Þannig var staðan í hálfleik þrátt fyrir nokkur færi Blikastúlkna.

Seinni hálfleikur var um 13 mínútna gamall þegar Greta Mjöll var búinn að koma Blikum í 2-0. Fín sókn Blika endaði með góðu skoti frá Þórdísi sem fór í stöng og þaðan til Grétu sem af harðfylgi kom boltanum yfir marklínuna.  Nú voru menn aðeins farnir að róast í stúkunni en það stóð ekki lengi því aðeins 7 mínútum seinna minkuðu KR stúlkur muninn beint úr hornspyrnu. Grátlegt því það hafði fátt bent til þess fram að þessu að leikurinn væri í hættu.  Nú fóru hlutirnir að gerast og á 75 mínútu tók títtnefnd Greta sig til og óð upp völlinn og skoraði stórgott mark sem góður markvörður Kr-inga átti ekki séns í að verja.  Greta greinilega ákveðin í að kveðja Breiðablik þetta árið með stórleik en þetta var síðasti leikur hennar í bili þar sem hún  heldur út til náms nú í lok mánaðar.  

KR stúlkur voru þó ekki af baki dottnar heldur náðu innan nokkurra mínútna að minnka muninn aftur í eitt mark með skoti utan af velli.  Síðustu mínútur leiksins voru síðan æsispennandi  þar sem voru færi og sláarskot á báða bóga en að lokum fór þó svo að Blikarnir lönduðu þarna mjög mikilvægum sigri, þeim fyrsta á heimavelli í sumar!

Frá því að þjálfaraskipti urðu hjá Blikum hefur margt breyst til batnaðar.  Nýr þjálfari hefur nú náð níu stigum af tólf mögulegum og einungis tapað fyrir toppliði Stjörnunnar.  Það sem er kannski meira um vert er að stelpurnar eru aftur búnar að finna áhugann og leikgleðina og er allt annað að sjá til þeirra í síðustu leikjum En nú tekur við ný áskorun því í næstu leikjum tínast nokkrir af máttarstólpunum á braut og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þær ungu stelpur sem nú fá tækifæri höndla það.  Það er þó ekki ástæða til annars en vera bjartsýnn á framhaldið, stórleikur við ÍBV í eyjum eftir Þjóðhátíð og mikilvægt að við tryggjum að það verði ekki dansað í dalnum eftir að við yfirgefum eyjar þann 4 ágúst. nk.  





<- Til baka