Næsti leikur hjá þeim grænu er í Víkinni á miðvikudagskvöldið á móti Víkingum sem sitja í 11 sæti Pepsideildarinnar með 6 stig, Víkingar hafa verið óheppnir með meiðsli og aðeins einn leikur hefur unnist það sem af er sumri. Ljóst er að þetta er mikilvægur leikur fyrir Víkinga sem að vilja væntanlega reyna að rífa sig frá botninum sem fyrst, með sigri þá komast þeir væntanlega upp úr fallsæti, bronsmaðurinn og þýska stálið Magnús Páll Gunnarsson gekk í raðir Víkinga á dögunum en ekki er búist að hann nái leiknum á móti sínu gamla liði.
Víkingsliðið var mikið í umræðunni fyrir mót þegar að fyrrum þjálfari liðsins Leifur Garðarson leit út fyrir að vera flæktur í undalegt mál auk þess sem að greining á leikmönnum lak á netið við litlar vinsældir stjórnar Víkings sem lét hann fara og réð í staðinn Andra Marteinsson sem að sumir segja að sé orðinn valtur í sessi eftir misjafnt gengi það sem af er sumri. Með liðinu leikur Hörður Sigurjón Bjarnason sem að þekkir nú vel til í Kópavoginum, að auki eru fyrrum KR-ingarnir Mark Rutgers og Björgólfur Takefusa. Svo má ekki gleyma mönnum eins og Pétri Georg Markan og Baldri Aðalssteinssyni. Það er ljóst að Víkingar mæta brjálaðir í þennan leik og þeir hvetja sitt fólk til að mæta í stúkuna til að láta vel í sér heyra og til að styðja sína menn. Síðasti leikur sem að Víkingar léku tapaðist á móti Valsmönnum á Hlíðarenda en Víkingar voru einum fleiri og með 0-1 forystu þegar að nokkrar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, raunar hafa Víkingar ekki fengið stig síðan að þeir gerðu jafntefli við Grindavík í Víkinni þann 22 maí eða fyrir um einum og hálfum mánuði síðan.
Varðandi Blikaliðið þá hefur verið eitthvað um meiðsl innan liðsins og verður forvitnilegt að sjá hvernig hópurinn lítur út á morgun. Hópurinn er sterkur og það kemur meður í manns stað. Fyrrum Víkingurinn Ingvar Kale hefur verið frá vegna meiðsla eftir bikarleikinn sem við tölum ekki um og má búast við því að hann geri allt sem í sínu valdi stendur til að ná því að spila þennan leik. Blikarnir unnu góðan sigur á Keflvíkingum í síðasta leik þar sem að liðið virkaði sannfærandi og markahæsti maður Íslandsmótsins Kristinn Steindórsson skoraði 2 mörk. Vörninn með Kára og Elfar virkaði líka vel og fóru allir Blikar sáttir heim eftir skemmtilega kvöldstund á Kópavogsvelli. Spáin er með besta móti annaðkvöld og með réttu tækjunum þá væri jafnvel hægt að ná sér í smá lit í stúkunni, látum í okkur heyra, mætum öll í grænu og styðjum við bakið á strákunum. Sigur gæti skilað Blikaliðinu upp í 4 sæti og það væri vel þegið svo ekki sé meira sagt!
KIG