Blikar mæta Fram

10.09.2011

Eftir langt hlé í Pepsí-deildinni hefst baráttan aftur með heilli umferð á sunnudag. Strákarnir okkar halda í Laugardalinn og mæta bláklæddum Frömurum. Búast má við hörkuleik enda hafa leikir þessara liða verið afskaplega jafnir og spennandi undanfarin ár. Í fyrri umferðinni endaði leikurinn með jafntefli 1:1. Kristinn Steindórsson skoraði markið okkar í fyrri hálfleik en Arnar Gunnlaugsson jafnaði í síðari hálfleik. Úrslitaleikurinn í bikarkeppnninni fyrir tveimur árum er flestum Blikum enn í fersku minni. Við lyftum bikarnum eftir sigur í vítaspyrnukeppni.

Guðmundur Kristjánsson og Finnur Orri Margeirsson koma aftur inn í hópinn eftir að hafa misst af Valsleiknum vegna leikbanns. Samt sem áður er nokkuð um forföll því margir í okkar liði eru meiddir. En það breytir því ekki að 11 frískir Blikar byrja leikinn gegn Fram í Laugardalnum.

Töluverð umræða hefur verið um stuðning (eða skort á stuðningi) úr stúkunni við Blikaliðið. Nú er tími til kominn að áhorfendur úr Kópavoginum sýni úr hverju þeir eru gerðir.

Blikaklúbburinn hvetur alla til að mæta GRÆNKLÆDDA á leikinn gegn Fram og láta vel í sér heyra.

Látum óma margraddað um dalinn ,,Áfram Breiðablik"!





<- Til baka