Það var glaðbeittur hópur Blika sem hélt af stað til Noregs í gær frá Smáranum. Eins og með mikilvæga VIP-aðila þá fór Blikaliðið í tveimur hollum til Noregs. Hér er mynd af seinna hollinu: f.v. Ólafur Björnsson formaður meistaraflokks ráðs, Guðmundur Kristjánsson, Arnór Aðalsteinsson, Rafn Andri Haraldsson, Olgeir Sigurgeirsson, Jökull Elísabetarson, Tómas Óli Garðarson, Dylan McAlister, Ólafur Pétursson markvarðarþjálfari, Arnar Bill Gunnarsson yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks, Trausti Ósvaldsson meistaraflokksráði.
Fremri röð; Kristinn Jónsson, Finnur Orri Margeirsson, Kári Ársælsson fyrirliði, Ingvar Þór Kale og Kristinn Steindórsson.
Ferðin til Noregs gekk vel fyrir sig. Liðið æfði saman í gær og aftur í dag. Það eru allir heilir og mikil stemmning í liðinu fyrir leikinn á morgun.