Björk Gunnarsdóttir gengin til liðs við kvennalið Breiðabliks
07.11.2011
Björk Gunnarsdóttir hefur gert 2 ára samning við Meistaraflokk kvenna hjá Breiðablik. Björk er 24 ára gömul framherji. Björk lék síðast með Val en þar spilaði hún 35 deildarleiki og skoraði 21 mark fyrir félagið. Björk kom til Vals frá Stjörnunni fyrir tímabilið 2010.
Björk hefur leikið 161 leik í deild og bikar með Val og Stjörnunni og hefur skorað í þeim 89 mörk. Hún á að baki einn leik fyrir A-landslið Íslands.
Á myndinni má sjá hana og Borghildi Sigurðardóttir formann meistaraflokksráð í Breiðablik
<- Til baka