Ballið byrjar aftur!

02.08.2011

Blikaliðið tekur á móti bikarmeisturum FH á Kópavogsvelli á miðvikudagskvöld kl.19.15. Strákarnir okkar eru staðráðnir í því að hefna fyrir tapið í fyrri umferðinni gegn Fimleikadrengjunum. Þeir hafa æft vel um helgina og var púlað bæði sunnudag og mánudag. Það var því ekki neitt þjóðhátíðarstúss á okkar drengjum! 

Ólafur getur teflt fram svipuðu liði og í síðustu leikjum. Haukur Baldvinsson er enn á meiðslalistanum og Viktor Unnar og Tómas Óli eiga við smávægileg meiðsli að stríða. Aðrir leikmenn eru til reiðu þegar þessar línur eru ritaðar.  Það verður áhugavert að sjá hvernig varnarlínan verður. Þórður Steinar Hreiðarsson kom inn á sem varamaður gegn KR og sýndi góða takta. Kristinn Jónsson var mjög frískur sóknarlega í síðustu tveimur leikjum þannig að möguleikar Ólafs þjálfara varðandi uppstillingu eru fleiri en oft áður. 

FH-liðið vann góðan sigur á Val í síðustu umferð en tímabilið hefur samt verið vonbrigði hjá þessu sterka liði. Það má því búast við hörkuviðureign á Kópavogsvelli á morgun. Við hvetjum alla Blika, bæði til sjávar og sveita, að fjölmenna á völlinn og styðja Blikaliðið til sigurs. StuðBlikar ætla að fjölmenna þannig að almennir Blikar þurfa líka að leggja sitt af mörkum.

Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!





<- Til baka