Toppslagur í vesturbænum !

24.07.2011

Blikaliðið heldur vestur í bæ í kvöld og leikur gegn toppliði KR. Fyrri leik þessara liða á þessu keppnistímabili lauk með 2:3 sigri
þeirra röndóttu í hörkuleik. Blikar misstu þá Ingvar Kale markvörð af velli strax á 19. mínútu en stóðu samt vel í gestunum úr
Vesturbænum. Mörk okkar pilta settu Kristinn Steindórsson og Guðmundur Kristjánsson.

Blikar koma í þennan leik fullir sjálfstraust eftir góðan 2:0 sigur á Rosenborg í Evrópukeppninni fyrr í þessari viku. Í gær gekk Þórður Steinar Hreiðarsson varnarmaður til liðs við Blika. Hann er kominn með leikheimild og er því  löglegur í kvöld. Ekki er ólíklegt að Olafur þjálfari stilli upp óbreyttu liði leiknum við Rosenborg. Arnór verður þá miðvörður enda stóð hann sig með mikilli prýði í þeirri stöðu.  Einnig væri óskandi að aðrir leikmenn næðu sér jafn vel á strik því þá eigum við góða möguleika á því að ná í 3 stig í Frostaskjólið.

KR eru í skýjunum með að vera komnir áfram í Evrópukeppni félagslið og vonandi truflar það einbeitingu þeirra í þessum leik. En Vesturbæjarliðið er með stóran og sterkan leikmannahóp og á bekknum eru menn sem væru í byrjunarliðinu í flestum öðrum liðum í deildinni. Það verður því örugglega hart tekist á vestur í bæ í kvöld. Við hvetjum alla Blika til að mæta og styðja Blikaliðið til sigurs.

 

Áfram Breiðablik !





<- Til baka