Jæja, þá er þetta komið í hús. Enn einu sinni.
Blikakonur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Garðabæ á mánudagskvöld með 1–0 sigri á Stjörnunni. Líf Joostdóttir van Bemmel skoraði eina mark leiksins eftir 24 mínútna leik og þar með var 21. Íslandsmeistaratitill Breiðabliks í höfn.
Þetta er jafnframt þriðja árið í röð sem Blikakonur standa uppi sem Íslandsmeistarar. Maður gæti alveg vanist þessu. Reyndar er hætt við að við séum þegar farin að gera það og teljum þetta nánast sjálfsagðan hlut. Það er það auðvitað ekki, eins og þetta tímabil hefur sýnt okkur.
Það hefur nefnilega ýmislegt gengið á síðan flautað var til leiks í vor. Á köflum hafa Blikakonur spilað frábæran fótbolta, en svo hafa komið leikir inna milli þar sem hefur reynt verulega á okkur öll.
En þegar upp er staðið eru það okkar stelpur sem taka við Íslandsmeistaraskildinum. Aftur.
Fyrir leikinn var ljóst að jafntefli myndi nægja Blikum til að tryggja titilinn. FH hafði tapað 0–4 fyrir Þrótti í Kaplakrika daginn áður og þar með var staðan orðin ansi vænleg.
Það var hins vegar engin ástæða til að mæta í Garðabæinn og halda að verkefnið væri auðvelt. Stjarnan hafði unnið báða fyrri leiki liðanna í sumar, fyrst 3–1 í Kópavogi og síðan 2–0 í Garðabæ.
Garðbæingar höfðu því haft ágætis tak á okkur og það var kannski kominn tími til að gera eitthvað í því.
Blikakonur mættu ákveðnar til leiks. Þær tóku frumkvæðið strax í upphafi, héldu boltanum vel og voru mun hættulegri aðilinn fyrstu mínúturnar.
Líf Joostdóttir van Bemmel var sérstaklega lífleg í framlínunni. Hún gerði varnarmönnum Stjörnunnar lífið leitt með hraða sínum og komst meðal annars í dauðafæri á 17. mínútu. Þá náði hún að leika framhjá Bridgette Skiba í marki Stjörnunnar en markvörðurinn náði að trufla hana nægilega mikið til að ekkert varð úr.
Það þurfti þó ekki að bíða lengi eftir næsta tækifæri.
Á 24. mínútu kom markið sem reyndist skilja liðin að.
Agla María Albertsdóttir átti þá frábæra sendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar á Þórdísi Elvu Ágústsdóttur. Þórdís var snögg að átta sig á stöðunni og renndi boltanum þvert fyrir markið þar sem Líf mætti á fjærstönginni og skoraði í opið mark.
Vel útfærð sókn og virkilega fallegt mark.
Þarna var allt gert rétt. Sendingin frá Öglu, hlaupið hjá Þórdísi og staðsetningin hjá Líf. Svona á þetta að vera og væri óskandi að þetta væri alltaf jafn einfalt.
Blikar héldu áfram að sækja og hefðu vel getað bætt við mörkum fyrir hlé. Agla María fékk gott færi, en skaut framhjá. Líf komst einnig aftur í álitlega stöðu en náði ekki að gera sér mat úr henni.
Stjarnan fór aðeins að láta til sín taka þegar leið á hálfleikinn. Hrefna Jónsdóttir átti meðal annars skalla að marki en Herdís Halla Guðbjartsdóttir varði örugglega.
Staðan var því 1–0 í hálfleik og Blikar með aðra höndina á Íslandsmeistaraskildinum. Það var þó fullsnemmt að fara að panta áletrunina á hann.
Síðari hálfleikurinn var öllu jafnari. Stjarnan mætti ákveðnari til leiks og Blikakonur náðu ekki alveg sömu tökum á spilinu og í fyrri hálfleik.
Það var svosem ekkert nýtt á þessu tímabili að við þyrftum að hafa svolítið fyrir hlutunum.
Blikar fengu þó sín færi. Edith Kristín Kristjánsdóttir komst í álitlega stöðu en var stöðvuð á síðustu stundu. Líf átti skot yfir markið og Agla María reyndi skot utan vítateigs á 78. mínútu sem fór rétt framhjá.
Það hefði nú alveg verið ágætt að bæta við öðru marki og leyfa stuðningsmönnum að njóta síðustu mínútnanna án þess að fylgjast stöðugt með klukkunni.
En það var auðvitað ekki í boði.
Á 82. mínútu kom nefnilega besta færi Stjörnunnar. Hulda Hrund Arnarsdóttir sendi boltann fyrir markið þar sem Murielle Tiernan var komin í sannkallað dauðafæri. Hún náði hins vegar ekki almennilegri snertingu á boltann og Herdís Halla greip hann.
Þarna má segja að nokkrir stuðningsmenn Breiðabliks hafi misst úr hjartslátt.
Stjarnan reyndi áfram að jafna metin og undir lokin mætti Bridgette Skiba, markvörður heimakvenna, meira að segja fram í vítateig Blika þegar Stjarnan fékk hornspyrnu.
En ekkert gekk hjá heimakonum. Blikavörnin hélt haus, og loks kom flautið sem allir grænklæddir höfðu beðið eftir.
Leik lokið. Þrjú stig í hús. Íslandsmeistaratitillinn sömuleiðis.
Ekki flóknara en það.
Þegar horft er yfir tímabilið er kannski merkilegast hversu vel Blikakonum hefur tekist að halda sér á toppnum þrátt fyrir allar þær breytingar sem urðu á liðinu.
Eftir síðasta tímabil misstum við fjölda leikmanna, margar þeirra í atvinnumennsku, og nýtt þjálfarateymi tók við stjórninni. Ian Jeffs og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fengu því það verkefni að halda Breiðabliki á toppnum með töluvert breyttan leikmannahóp.
Það er nú ekki alveg einfaldasta verkefni sem hægt er að taka að sér.
Sumir hefðu eflaust talið að nú væri komið að ákveðnu uppbyggingarári.
Það hefur greinilega enginn sagt leikmönnunum að þær ættu að sætta sig við það.
Agla María Albertsdóttir hefur enn einu sinni verið gríðarlega mikilvæg fyrir liðið. Reyndir leikmenn á borð við Kristínu Dísi Árnadóttur, Karítas Tómasdóttur og Elínu Helenu Karlsdóttur hafa tekið mikla ábyrgð og Elísa Viðarsdóttir hefur sömuleiðis lagt sitt af mörkum með reynslu sinni.
En ekki síður hafa ungu leikmennirnir stigið upp.
Líf Joostdóttir van Bemmel, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Edith Kristín Kristjánsdóttir hafa allar fengið stærri hlutverk og sýnt að það er ýmislegt spennandi í gangi hjá næstu kynslóð Blika.
Það er raunar nokkuð ánægjulegt fyrir okkur sem höfum fylgst með Breiðabliki lengi að sjá nýja leikmenn koma fram á sjónarsviðið og taka við keflinu. Það hefur verið einn af styrkleikum félagsins í gegnum tíðina.
En auðvitað hefur ekki allt gengið eins og í sögu.
Við höfum tapað leikjum sem við hefðum viljað vinna, lent í meiðslavandræðum og stundum hefur spilamennskan verið langt frá því sem við viljum sjá.
Á móti kemur að liðið hefur oft sýnt mikinn karakter þegar á reynir.
Ef velja ætti einn leik sem lýsir þessu tímabili ágætlega væri erfitt að horfa fram hjá 5–4 sigrinum á Þrótti fyrr í mánuðinum.
Þar voru Blikar 1–4 undir í hálfleik.
Það voru líklega ekki margir Blikar sérlega bjartsýnir þegar gengið var til búningsklefa. Sumir voru sennilega þegar farnir að reikna út hvað þyrfti að gerast í öðrum leikjum til að titillinn væri enn mögulegur.
En svo gerðist eitthvað.
Blikakonur komu til baka, jöfnuðu leikinn og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði sigurmarkið á 90. mínútu.
5–4!
Maður hefði auðvitað kosið að vinna þennan leik með öruggum hætti og halda blóðþrýstingnum innan eðlilegra marka. En það var ekki í boði þann daginn.
Þessi sigur reyndist gríðarlega mikilvægur í titilbaráttunni og þegar upp er staðið má vel halda því fram að þarna hafi einn af lykilsigrum tímabilsins unnist.
Fjórir leikir í úrslitakeppninni, fjórir sigrar og Íslandsmeistaratitillinn tryggður fyrir lokaumferð.
Það er ekki hægt að kvarta mikið yfir þeirri niðurstöðu.
Það er full ástæða til að hrósa þjálfarateyminu fyrir vinnuna í sumar.
Ian Jeffs og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir tóku við liði sem hafði misst marga lykilmenn og þurftu að finna rétta jafnvægið milli reynslu og ungra leikmanna. Aðrir i þjálfarateyminu voru lika nýjir og komu sterkir inn i þetta, bæði Gunnar Birgis og markmannsþjálfarinn Stefán Logi i auk Hjartar Fjelsted styrktarþjálfara.
Það hefur ekki alltaf gengið snurðulaust og sjálfsagt hafa þau þurft að klóra sér í kollinum oftar en einu sinni. En árangurinn talar sínu máli.
Ungir leikmenn hafa fengið traust, liðið hefur þróast eftir því sem leið á tímabilið og þegar mest reyndi voru Blikakonur tilbúnar.
Ian sagði eftir leikinn í Garðabæ að þetta hefði ekki verið besti leikur liðsins á tímabilinu. Það má alveg taka undir það. Hann sagðist þó vera virkilega stoltur af leikmönnunum og þeim árangri sem þær hefðu náð.
Það er skiljanlegt.
Það er eitt að taka við Íslandsmeistaraliði. Það er annað að taka við Íslandsmeistaraliði sem hefur misst stóran hluta leikmannahópsins og skila samt titlinum heim aftur.
Það var ánægjulegt að sjá Blika mæta í Garðabæinn og styðja stelpurnar.
Mikill meirihluti ahorfenda voru grænklæddir stuðningsmanna sem lét vel í sér heyra.
Þegar flautað var til leiksloka var fögnuðurinn að vonum mikill. Leikmenn og stuðningsmenn fögnuðu og loks var hægt að slaka aðeins á eftir langt tímabil.
Við höfum auðvitað séð Blikakonur vinna titla áður, en það er alltaf jafn gaman að sjá gleðina hjá leikmönnunum sjálfum. Sérstaklega hjá þeim yngri sem eru að upplifa þetta í fyrsta sinn.
Og það verður ekki annað sagt en að þessi hópur hafi haft fyrir titlinum.
Það hefði eflaust verið hægt að gera þetta með aðeins minni dramatík í sumar, en þá hefðum við líka misst af ýmsu.
Á föstudaginn kemur FH í heimsókn í síðasta leik tímabilsins.
Sá leikur stefndi lengi í að verða úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn, en nú er búið að afgreiða þau mál. FH-ingar geta því komið í Kópavoginn án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að taka Íslandsmeistaraskjöldinn með sér heim.
Hann verður í Kópavogi.
Það verður gaman að sjá stelpurnar fá skjöldinn afhentan á heimavelli og vonandi fjölmenna Blikar til að fagna með liðinu.
Þetta hefur verið langt og á köflum ansi skrautlegt tímabil. Við byrjuðum með töluvert breytt lið, höfum þurft að horfa á eftir stigum hér og þar og fengið okkar skerf af spennuleikjum.
En niðurstaðan er sú sama og undanfarin tvö ár.
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna 2026.
Í 21. sinn í sögu félagsins og þriðja árið í röð.
Það er ekki sjálfgefið, en það er ansi notalegt.
Og ef stelpurnar ætla að halda þessu áfram næsta sumar er það bara hið besta mál. Við stuðningsmennirnir þurfum kannski aðeins að vinna í þolinu fyrir næstu leiktíð.
Til hamingju, Blikakonur!
Áfram Breiðablik!