BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Karen María er gengin til liðs við Breiðablik

30.09.2021

Hin öfluga Karen María Sigurgeirsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik

Karen María er tvítug og kemur frá uppeldisfélagi sínu Þór/KA, þar sem hún hefur verið í stóru hlutverki síðustu ár. Hún spilaði alla deildarleiki liðsins á nýafstöðnu tímabili og skoraði fimm mörk. Karen María á að baki þrettán leiki með yngri landsliðum Íslands og var fyrr á árinu valin í æfingahóp A-landsliðsins. Karen María afar öflugur leikmaður og er án efa einn efnilegasti leikmaður landsins.

Samningur Karenar Maríu við Þór/KA átti að renna út þann 31.12.2021 og átti hún að ganga formlega til liðs við Breiðablik þegar næsti félagaskiptagluggi opnar. Samkvæmt reglum FIFA getur félag skráð leikmann utan félagaskiptaglugga til þess að leysa tímabundið af leikmann sem er í fæðingarorlofi. Breiðablik nýtti sér þetta ákvæði til þess að fá leikheimild fyrir Karen Maríu strax og verður hún því lögleg með Breiðablik í Meistaradeild Evrópu sem hefst n.k. miðvikudag þann 6.október með stórleik Breiðabliks og Paris Saint-Germain.

Ljóst er að Breiðablik hefði ekki getað fengið leikheimild fyrir Karen Maríu í Meistaradeildinni nema með góðu samstarfi við Þór/KA. Við Blikar þökkum Þór/KA kærlega fyrir fagleg vinnubrögð og velvilja í okkar garð. Akureyringar geta fylgst stoltir með sínum fulltrúa á stóra sviðinu í vetur enda kemur Karen María úr gríðarlega öflugu starfi Þórs/KA.

Karen María er boðin hjartanlega velkomin í Kópavoginn. Það verður spennandi að fylgjast með henni í grænu treyjunni á stóra sviðinu í vetur og næstu árin.

Til baka