BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Hildur Antons seld til Hollands

20.06.2022 image

Hildur Antonsdóttir spilaði á laugardag sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili þegar liðið vann Þór/KA, en hollenska félagið Fortuna Sittard hefur komist að samkomulagi við Breiðablik um að fá Hildi til liðs við sig.

Hildur er 26 ára gömul og hefur spilað með Blikum síðastliðin sex ár. Á þeim tíma hefur hún spilað 138 leiki með liðinu, skorað 38 mörk og tekið þátt í að vinna tvo Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla auk þess að komast fyrst íslenskra félagsliða í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Hildur á tvo A-landsleiki að baki og 40 leiki með yngri landsliðum.

Hildur hefur sannað sig sem einn allra besti leikmaður íslensku deildarinnar, en aðeins eru tvö ár síðan hún sleit krossband. Hún hefur hins vegar komið gríðarlega sterk til baka og hefur vakið athygli erlendra liða með fammistöðu sinni hjá Breiðablik.

Það verður missir af Hildi í Kópavoginum, en hún hefur verið ekki aðeins verið frábær í Blikabúningnum innan vallar, heldur einnig mikil fyrirmynd utan vallar.

Takk fyrir ómetanlegan tíma í Kópavoginum Hildur, og gangi þér sem allra best í Hollandi þar sem við hlökkum til að fylgjast með þér.

image

Sigurður Hlíðar Rúnarsson Deildarstjóri meistarflokka Breiðabliks, Hildur Antonsdóttir og Bo Breukers frá Fort­una Sitt­ard.

Til baka