BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Willum til Bristol á reynslu

09.01.2017

Blikinn ungi og efnilegi, Willum Þór Willumsson, hefur fengið boð að koma til enska 1. deildarliðsins Bristol á reynslu. Hann heldur því til Englands í dag og dvelur í baðstrandarbænum í viku við æfingar og keppni. Willum, sem er 18 ára gamall, hefur verið einn af lykilmönnum í Íslandsmeistaraliði 2. flokks Blika undanfarin tvö ár. Hann komst í meistaraflokkshópinn í fyrra og kom við sögu í einum leik í Pepsí-deildinni síðasta sumar. 

Willum er leikinn miðjumaður með góðan leikskilning. Hann á að baki tvo landsleiki með U 19 ára landsliði Íslands.

Blikar óska Willum til hamingju með þetta tækifæri og óska honum velfarnaðar í Bristol. 

Til baka