Árið í fyrra

Blikar hófu tímabilið í fyrra með öruggum sigri á Aftureldingu en töpuðu óvænt fyrir Fram í næsta leik. Liðið svaraði með fjórum sigrum í næstu fimm leikjum. Síðasta vikan í maí reyndist þung með töpum gegn FH og ÍA. Eftir það fylgdi sterkur kafli: átta taplausir leikir frá 1. júní til 3. ágúst. Haustið var erfiðara og í sjö leikjum frá 10. ágúst til 5. október náðist enginn sigur. Blikar unnu þó Fram í 25. umferð og héldu sér í baráttunni um Evrópusæti. Tap gegn Víkingi R. í næstsíðasta leik þýddi að lokaleikurinn gegn Stjörnunni varð hreinn úrslitaleikur um Evrópu 2026. Blikar þurftu tveggja marka sigur til að ná 3. sætinu en unnu leikinn með eins marks mun 2:3 og enduðu í 4. sæti. Sagan 2025.

Fjölmiðlaspár 2026

Fjölmiðlar spá Breiðabliki góðu gengi í Bestu deild karla í sumar. Spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaga var að koma í hús rétt í þessu og þar er Blikaliðinu spá 2. sæti. Fótbolti.net og 433.is spá spá Blikaliðinu 2. sæti. Spár Mbl.is og íþróttadeildar Vísis og Sýnar eru rétt ókomanr. 

Svona var kynningar­fundur Bestu deildar karla

Vísir var með beina útsendingu frá kynningarfundi Bestu deildar karla þar sem spáð var í spilin fyrir komandi fótboltasumar. Smella hér

Svona hafa spárnar raungerst síðustu ár.

ÁR FJÖLMIÐLASPÁR NIÐURSTAÐA
2026 2. sæti ?
2025 1.- 2. sæti 4. sæti
2024 3. sæti 1. sæti
2023 1. sæti 4. sæti
2022 1. sæti 1. sæti
2021 1. sæti 2. sæti
2020 3. sæti 4. sæti
2019 4. sæti 2. sæti
2018 6. sæti 2. sæti

20 ár samfellt í efstu deild (2006–2025)

Breiðablik spilaði fyrst KSÍ mótsleik í 2.deildinni árið 1957. Félagið vann sig fyrst upp í efstu deild (1.deild) eftir yfirburðatímabil í 2.deildinni árið 1970. Frá 1971 hefur Blikaliðið leikið 40 tímabil, af 55 mögulegum, í efstu deild þar af samfellt 20 keppnistímabil í röð eftir sannfærandi sigur í næst efstu deild árið 2005. Leikir liðsins þessi 20 ár eru 448 - 217 sigrar - 112 jafntefli - 119 töp.

Skoruð mörk eru 819 gegn 587 (232+). Markahæstir núverandi leikmannahópi eru: Kristinn Steindórsson/60 mörk - Höskuldur Gunnlaugsson/54 mörk - Viktor Karl Einarsson/28 mörk - Aron Bjarnason/20 mörk - ​​Andri Rafn Yeoman/16 mörk. 

Titlar síðustu 20 ár

  • Íslandsmeistarar: 2024, 2022, 2010. Silfur: 2021, 2019, 2018, 2015, 2012.

  • Bikarmeistarar: 2009,  (2018).

  • Deildabikarmeistarar: 2024, 2015, 2013. Silfur: 2010, 2009.

  • Meistarakeppni KSÍ: 2025, 2023.

  • Vormót: Fótbolti.net mót: 2021, 2019, 2015, 2013, 2012. Þungavigtarbikarinn: 2025.

Af 12 félögum í Bestu deildinni 2026 er KR aina liðið sem hefur ekki spilað í næst efstu deild frá síðustu aldamótum. Þór og Keflavík eru að koma upp úr næst efstu deild. ÍBV var í næst efstu deild 2024, ÍA 2022, Fram 2018, KA 2015, Víkingur R, 2013, Stjarnan 2008, Valur 2004, Breiðablik 2005 og FH árið 2000. 

Evrópukeppnir

Frá 2010 hefur Breiðabliksliðið tekið þátt í UEFA keppnum 11 keppnistímabil þar af 7 ár í röð (2021–2025). Evrópuleikirnir eru 61 leikur gegn 30 erlendum liðum frá 26 löndum. 

  • Meistaradeild UEFA: 2025, 2023, 2011

  • Evrópudeild UEFA: 2025, 2023, 2020, 2019, 2016, 2013, 2010

  • Sambandsdeild UEFA: 2025, 2024, 2023, 2022, 2021

Stöðutaflan

Löng hefð er fyrir að birta stöðutöflu af vef KSÍ í fyrsta upphitunarpistli hvers tímabils - og einnig að tíðindamaður síðunnar bendi á þá staðreynd að Breiðablik er efst í töfluröðinni fyrir fyrsta leik mótsins 😊

Innbyrðis gegn Víkingum

2025

"Er frekja að biðja um framlengingu?" er fyrirsögn Kára Snorrasonar skrifara Fótbolta.net eftir 2:2 jafnteflisleik liðanna í Víkinni  lok ágúst í fyrra. Kröftugir Blikar eru með 1:1 stöðu þegar leikmaður blika er rekinn af velli 52. mín. Heimaliðið kemst yfir 2:1 skömmu eftir það en einum færri jafna blikar leikinn í 2:2 og þannig var staðan þegar Ívar Örri flautaði leikinn af. Kári skrifar "Frábær fótboltaleikur frá fyrstu mínútu og til þeirrar síðustu, tempóið í hámarki og mikil harka. Ég held að ég geti talað fyrir alla áhorfendur að okkur þyrsti í meira. Ívar Orri, dómari leiksins, hefði mátt taka upp á því frekar en að flauta til leiksloka að flauta til framlengingar í staðinn, í hið minnsta lengri uppbótartíma en fimm mínútur."

2024

Niðurstöðu í lokaleiknum í Víkinni þekkja allir. Sigur í leiknum og Íslandsmeistaratitillinn er Blika. Okkar menn mættu með kassann úti og pressuðu leikmenn heimaliðsins frá fyrstu mínútu. þessi leikaðferð skilaði þriggja marka sigri og Blikar tóku skjöldinn góða með sér eftir mikil fagnaðarlæti á heimavelli hamingjunnar. 

Liðin skipta stigunum 15 jafn á milli sín í síðustu fimm í Víkinni::

J
Víkingur
2 2
Breiðablik
A-deild 21. umferð Víkingsvöllur 31.08.2025
1
12
S
Víkingur
0 3
Breiðablik
A-deild ÚRSLIT! 27. umferð - Efri hluti Víkingsvöllur 27.10.2024
3
9
22
T
Víkingur
4 1
Breiðablik
A-deild 3. umfrð Víkingsvöllur 21.04.2024
1
13
T
Víkingur
5 3
Breiðablik
A-deild 21. umferð Víkingsvöllur 27.08.2023
1
20
S
Víkingur
0 3
Breiðablik
A-deild 6. umferð Víkingsvöllur 16.05.2022
1
14

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn Reykjavíkur Víkingum er KS-ingur frá Siglufirði en flutti í Kópavoginn 2001. Gerðist harður Bliki þegar börnin fóru að æfa og spila með Breiðabliki. Blikinn hefur starfað í meistaraflokksráði karla undanfarin ár.

Almar Möller - Hvernig fer leikurinn?

Þetta er fyrsti leikur tímabilsins og spennan því mikil. Vegna þátttöku í Sambandsdeild Evrópu hefur undirbúningstímabilið verið styttra en annarra liða. Ég held að það muni hafa áhrif á takt liðsins í upphafi tímabilsins. Leikurinn verður jafn og mun enda 1-1. Kristófer með markið.

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Almar Möller varð Silfurbliki á aðalfundi knattspyrnudeildar í byrjun mars 2026, en hann hefur um nokkurra ára skeið setið í meistaraflokksráði karla og komið að fjölmörgum verkefnum í tengslum við starf knattspyrnudeildar allrar.  

Dagskrá

Miðasala á leikinn opnar á Stubb 

Fyrirpartý fyrir fyrsta leik!

Það er komið að fyrsta leik Blika í Bestu deildinni!  Deildin byrjar með látum, Víkingur - Breiðablik kl. 19:15 föstudaginn 10.apríl og ljóst er að færri munu komast á völlinn en vilja! Við hitum upp í Grænu stofunni kl. 17 og mætum svo með læti í Víkina og málum stúkuna græna! (ekki í bókstaflegri merkingu). 
Blikavörur verða á svæðinu á sérstöku tilboði. Rútuferðir verða í boði frá Kópavogsvelli en til að áætla fjölda í rútuna biðjum við ykkur að skrá fjölda hér: https://forms.gle/VAcbCrzgGeRgjMPt8

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Klippur frá síðustu heimsókn í Víkina