Vígið okkar í Smáranum stóð sannarlega undir nafni í sumar.

Við unnum 10 heimaleiki í röð í Pepsi Max deildinni 2021 með markatöluna 32-1.

Ef við teljum Evrópuleiki með eru sigrarnir 12 talsins.

Þetta mikla vígi hefur skilað 19 sigrum af 20 mögulegum á öllum mótum ársins. Fimm leikjum lauk með 4-0 sigri, tveir fóru 3-0 og tveir 2-0. Aðeins Skagamönnum tókst að troða inn marki þegar við sigruðum þá 2-1.

Við höfum aldrei fengið jafn mörg stig í deild hinna bestu, 47 talsins, stigi meira en árið 2015.

Við skoruðum 55 mörk en það er það þriðja mesta í sögu 12 liða deildar og 101 mark í 39 mótsleikjum ársins en fyrra metið var 92 mörk í 46 leikjum árið 2013. Mörkin skiptast þannig á milli móta: FótboltiNet: 17 mörk. Lengjubikarinn: 18 mörk. Evrópukeppni: 11 mörk. Pepsi Max: 55 mörk.

Við getum því þrátt fyrir allt verið ánægð með okkar menn í sumar. Við fengum blússandi sóknarbolta, mikið af mörkum en vorum auðvitað grátlega nærri því að ná Íslandsmeistaratitlinum.

Óskar Hrafn og Halldór Árnason verða hjá okkur næstu fjögur ár og það er full ástæða til að hlakka til komandi tíma í víginu okkar í Smáranum. 

Sigurleikirnir tíu í Pepsi Max 2021 í tímaröð:

S
Breiðablik
4 0
Keflavík
A-deild 3. umferð - Stöð 2 Sport Kópavogsvöllur 13.05.2021
40
1
23
S
Breiðablik
4 0
Stjarnan
A-deild 11. umferð Kópavogsvöllur 08.07.2010
4
S
Breiðablik
2 0
Fylkir
A-deild 8. umferð - Stöð2.is Kópavogsvöllur 12.06.2021
33
1
25
S
Breiðablik
4 0
FH
A-deild 9. umferð - Stöð 2 Sport Kópavogsvöllur 20.06.2021
52
28
S
Breiðablik
4 0
Leiknir R
A-deild 11. umferð Kópavogsvöllur 03.07.2021
42
1
23
S
Breiðablik
4 0
Víkingur
A-deild 15. umferð - Stöð 2 Sport Kópavogsvöllur 02.08.2021
78
28
S
Breiðablik
2 1
ÍA
A-deild 17. umferð - stod2.is vefsjónvarp Kópavogsvöllur 16.08.2021
43
22
S
Breiðablik
2 0
KA
A-deild 18. umferð - Stöð 2 Sport Kópavogsvöllur 21.08.2021
30
S
Breiðablik
3 0
Valur
A-deild 20. umferð Kópavogsvöllur 11.09.2021
83
1
30
S
Breiðablik
3 0
HK
A-deild 22. umferð Kópavogsvöllur 25.09.2021
59
1
29