BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Undankeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24: Shamrock Rovers - Breiðablik

09.07.2023 image

Leiðin í undankeppnina

Þegar dregið var í forkeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24 13. júní í Nyon kom liðið Tre Penne frá San Marínó upp úr pottinum sem andstæðingur Breiðabliks í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildarinnar sem leikin var á Kópavogsvelli 27. og 30. júní 2023. Hinn undanúrslitaleikur keppninnar var á milli Budućnost Podgorica og Atlètic Club d'Escaldes. Sigurvegarar leikjanna 27. júní, Breiðablik og Budućnost Podgorica, léku svo til úrslita 30. júní. Sigurvegari leiksins, Breiðablik, tryggði sér þar með inn í fyrstu umferð undankeppni Meistardeildarinnar og mætir Shamrock Rovers í fyrri leiknum á þeirra heimavelli, Tallaght Stadium í Dublin, þriðjudaginn 11. júlí kl. 18:45! Síðari leikur liðanna verður á Kópavogsvelli þriðjudaginn 18. júlí kl.19:15!

Nánar um leiki Breiðabliks í forkeppninni:

Um andstæðinginn

image

Félagið Shamrock Rovers er írskur atvinnumannaklúbbur með aðsetur í Tallaght, Suður-Dublin. Liðið keppir í úrvalsdeild Írlands og er sigursælasta félag írska lýðveldisins. Félagið hefur unnið Írlandsmeistaratitilinn 20 sinnum og FAI bikarinn 25 sinnum. Nánar um félagið. 

Shamrock Rovers var stofnað árið 1899. Þeir unnu deildarmeistaratitilinn í fyrstu tilraun tímabilið 1922/23 og festu sig í sessi sem sigursælasta félag Írlands árið 1949 en þá hafið félagið unnið 44 stóra titla. Félagið varð fyrsta írska liðið til að keppa í Evrópukeppni árið 1957. Félagið lék á Glenmalure Park frá 1926 til 1987 en þá var vallarsvæðið selt til fasteigna verktaka. Næstu 22 ár spilaði félagið heimaleiki á ýmsum stöðum í Dublin og víðar. 

Tallaght Stadium varð þeirra heimavöllur árið 2009 eftir margra ára tafir og lagaflækjur.

Þann 25. ágúst 2011 varð Rovers fyrsta írska liðið til að komast í riðlakeppni annarra tveggja efstu deilda í Evrópu.

Evrópukeppnir

Félagið á sér langa sögu í Evrópukeppnum. Þeir voru fyrsta írska liðið til að taka þátt í Evrópukeppni árið 1957. Félagið hefur náð mjög góðum árangri í Intertoto keppninni og Evrópudeildinni. Fyrsti sigur þeirra í Meistaradeildinni var 1:0 sigur í undankeppninni 2011/12 gegn FC Flora frá Tallinn á Tallaght Stadium í Dublin. Stærsti sigur þeirra i Evrópukeppni var samanlagður 7:0 sigur á Fram í fyrstu umferð UEFA-bikarsins í september 1982. Í ágúst 2011 varð Shamrock Rovers fyrsta írska liðið til að komast í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA þegar þeir sigruðu Partizan Belgrad 2:1 í framlengdum leik í Serbíu og unnu samanlagt 3:2. Í fyrra komust Shamrok Rovers í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA 2022/23.

Ferill Shamrock Rovers í Evrópu 2022/23:

- Meistaradeildin: Sigruðu Hibernians í fyrstu umferð undankeppni samanlagt 3:0. Féllu út í annari umferð undankeppni fyrir Ludogorets samanlagt 2:4.

- Evrópudeuldin: Höfðu betur gegn Shkupi í þriðju umferð undankeppni samanlagt 5:2. Fellu út fyrir  Ferencváros í umspili samanlagt 1:4.

- Sambandsdeildin. Í F-riðli með Gent, Molde og Djurgården. Enda í 4. sæti eftir 2 jafntefli og 4 töp.

Ferill Shamrock Rovers í Evrópukeppnum frá upphafi:

image

Saga Blika í Evrópukeppnum

image

Breiðabliksliðið tekur nú þátt í Evrópukeppni fimmta árið í röð. Leikurinn við Shamrock Rovers á þriðjudaginn verður 30. Evrópuleikur Blikaliðsins frá upphafi. Breiðablik hefur tekið þátt í Evrópukeppnum í 9 ár af 13 mögulegum - fyrst 2010 - skipting milli Evrópumóta er þessi: 

Meistardeild: 2023, 2011. Evrópudeild: 2020, 2019, 2016, 2013, 2010. Sambandsdeild: 2022, 2021.

Liðin sem Blikar hafa mætt í Evrópukeppnum:

2023: Buducnost Podgorica, Tre Penne

2022 - Istanbul Basaksehir, Buducnost Podgorica, UE Santa Coloma

2021 - Aberdeen, Austria Wien, Racing Union

2020 - Rosenborg

2019 - Vaduz

2016 - Jelgava

2013 - Aktobe, Sturm Graz, FC Santa Coloma

2011 - Rosenborg

2010 - Motherwell

Samtals 29 leikir í 10 löndum - 12 sigrar, 5 jafntefli, 12 töp.

Flestir leikir í Evrópukeppnum:

2022: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Istanbul Basaksehir - 2.umf. Buducnost Podgorica - 1.umf. UE Santa Coloma.

2021: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Aberdeen FC - 2.umf. Austria Wien - 1.umf. Racing Uion.

2013: Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. FC Aktobe - 2.umf. Sturm Graz - 1.umf. FC Santa Coloma.

Áfram Breiðablik. Alltaf - alls staðar!

Dagskrá

Stuðningsmannavefurinn blikar.is sendir baráttukveðjur til Írlands en Blikaliðið er nú mætt til Dublin til að undirbúa sig fyrir þennan mikilvæga Evrópuleik.

Þó nokkur fjöldi Blika fylgir liðinu en einnig verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. Blikar í Kópavoginum hittast í Grænu stofunni sem opnar kl 18:00!

Miðasala á leikinn úti er hér.

Dómari: Chrysovalantis Theouli, Kýpur. Aðstoðardómarar: Michael Soteriou og Pavlos Georgiou, Kýpur. Fjórði dómari: Konstantinos Fellas, Kýpur. Myndbandsherbergi: Dimitris Solomou og Marios Christoforou, Kýpur

Það verður verður sannkallað Blikakvöld á þriðjudaginn!

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

image

Smella á borða fyrir beina textalýsingu UEFA

Til baka