BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Undankeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24: Breiðablik - F.C. Copenhagen

22.07.2023 image

Eftir gríðarlega öfluga frammistöðu okkar manna gegn Shamrock Rovers í 1.umf undankeppni Meistaradeildar UEFA er komið að næstu rimmu. Tveir leikir við Danmerkur meistarana F.C. Kaupmannahöfn.

Fyrri leikurinn er heimaleikur Blika. Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á þriðjudaginn kl.19:15! Uppselt er á leikinn (miðar seldust upp á korteri á fimmtudaginn var)

Seinni leikurinn er á Parken vellinum í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 2. ágúst kl.18:00! (GMT).

Liðin hafa tvisvar mæst í æfingamótinu, The Atlantic Cup, í Portúgal:

10.02 19:44
2014
F.C. Copenhagen
Breiðablik
2:0
5
1
The Atlantic Cup | 3. leikur
The Estádio Algarve | #

Leið Breiðabliks í undankeppnina

Þegar dregið var í forkeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24 13. júní í Nyon kom liðið Tre Penne frá San Marínó upp úr pottinum sem andstæðingur Breiðabliks í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildarinnar. Forkeppnin var leikin á Kópavogsvelli dagana 27. og 30. júní 2023. Sigurvegarar leikjanna 27. júní, Breiðablik og Budućnost Podgorica, léku svo til úrslita 30. júní. Sigurvegari leiksins - Breiðablik - tryggði sér þar með inn í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar og mætti þar írsku meisturunum Shamrock Rovers sem okkar menn lögðu 0:1 í Dublin og 2:1 á Kópavogsvelli.

Leikir Breiðabliks í forkeppni og 1. umf undankeppni Meistaradeildar UEFA:

Saga Blika í Evrópukeppnum

image

Karlalið Breiðabliks hefur tekið þátt í Evrópukeppni 5 ár í röð og í 9 ár af 13 mögulegum – fyrst 2010.

Leikurinn við FCK á þriðjudaginn verður því 32. Evrópuleikur Blikaliðsins frá upphafi. 

Þátttaka í Evrópumótum til þessa:

- Meistaradeild: 2023, 2011

- Evrópudeild: 2020, 2019, 2016, 2013, 2010

- Sambandsdeild: 2022, 2021

Liðin sem Blikar hafa mætt í Evrópuleikjum:

2023 - Shamrock Rovers, Buducnost Podgorica, Tre Penne

2022 - Istanbul Basaksehir, Buducnost Podgorica, UE Santa Coloma

2021 - Aberdeen, Austria Wien, Racing Union

2020 - Rosenborg

2019 - Vaduz

2016 - Jelgava

2013 - Aktobe, Sturm Graz, FC Santa Coloma

2011 - Rosenborg

2010 - Motherwell

Samtals 31 leikir í 11 löndum - 14 sigrar, 5 jafntefli, 12 töp.

Flestir leikir í Evrópukeppnum:

2023: Í gangi. Meistaradeild UEFA. Undankeppni: 2.umf. F.C.Copenhagen. 1.umf. Shamrock Rovers. Forkeppni: undanúrslit Tre Penne og úrslit Buducnost Podgorica.

2022: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Istanbul Basaksehir - 2.umf. Buducnost Podgorica - 1.umf. UE Santa Coloma.

2021: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Aberdeen FC - 2.umf. Austria Wien - 1.umf. Racing Uion.

2013: Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. FC Aktobe - 2.umf. Sturm Graz - 1.umf. FC Santa Coloma.

Um andstæðinginn

image

F.C. Copenhagen (danska: Football Club København), almennt þekktur sem FC København, FC Kaupmannahöfn, Kaupmannahöfn eða einfaldlega FCK, er danskt atvinnuknattspyrnufélag með aðsetur í Kaupmannahöfn, Danmörku. Félagið var stofnað árið 1992

F.C. Kaupmannahöfn hefur 15 sinnum unnið danska titilinn í fótbolta og 9 sinnum orðið danskur bikarmeistari.

Í evrópuboltanum hefur FCK komist í riðlakeppni Meistaradeildar UEFA og riðlakeppni Evrópudeildar UEFA oftar en nokkurt annað danskt félag. Og er eina danska félagið sem hefur komist í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. FCK er stigahæsta skandinavíska félagið á stigalista UEFA-liða.

Kaupmannahöfn spilar leiki sína á Parken leikvanginum, sem er einnig heimavöllur danska landsliðsins í fótbolta.

Knattspyrnufélagið er að mörgu leyti bæði gamalt og nýtt félag. Þrátt fyrir að klúbburinn hafi verið stofnaður árið 1992 á félagið sér meira en 100 ára sögu. Aðallið félagsins táknar tvö aðskilin félög: Kjøbenhavns Boldklub (elsta knattspyrnufélag meginlands Evrópu) stofnað 1876 og Boldklubben 1903 stofnað 1903. Vegna fjárhagserfiðleika alls staðar á Kaupmannahafnarsvæðinu á níunda áratugnum var Kjøbenhavns Boldklub á barmi gjaldþrots. Gömlu Kaupmannahafnarfélögin tvö tóku sig saman og stofnuðu yfirbygginguna sem í dag er FC København.

Með endurbyggingu Parken-leikvangsins, landsliðsleikvangs Danmerkur, hafði nýja félagið nútímalegan leikvang til að spila á frá upphafi. Upphaflegur metnaður félagsins var að taka þátt í Evrópukeppnum á hverju tímabili.

Árangur FCK heima

Meistarar x 15: 1992/93, 2000/01, 2002/03, 2003/04, 2005/06, 2006/07, 2008/09, 2009/10, 2010/11, 2012/13, 2015/16, 2016/17, 2018/19, 2021/22, 2022/23

Bikarmeistarar x 9: 1994/95, 1996/97, 2003/04, 2008/09, 2011/12, 2014/15, 2015/16, 2016/17, 2022/23

Deildarmeistarar: 1996

Super Cup meistarar x 3: 1995, 2001, 2004

Ørestad Cup x 2: 2000, 2002

The Atlantic Cup: 2014

Royal League x 2: 2004/05, 2005/06

Árangur í Evrópukeppnum

Fyrsti Evrópuleikur FCK var 16. september 1992, í UEFA-bikarnum 1992/93. FCK vann MP 10:1 en tapaði fyrir AJ Auxerre í annarri umferð. Í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu unnu þeir Manchester United 1:0 á heimavelli.

Síðan þá er félagið orðið sigursælasta danska liðið í Evrópukeppni. FCK komst fimm sinnum í riðlakeppni Meistaradeildar UEFA og fóru áfram í 16-liða úrslit 2010/11. FCK liðið komst í 8-liða úrslit Evrópudeildar UEFA 2019/20 en töpuðu fyrir Manchester United 1:0 í framlengingu.

Leikmannahópurinn

Tveir Íslendingar eru í leikmannahópi FCK. Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson en Orri er sonur þjálfarans okkar, Óskars Hrafns. Þetta er mjög áhugaverð sviðsmynd og Óskar var spurður út í þetta í blaðaviðtali við Mbl.is eftir leik okkar manna við ÍBV á föstudaginn. "Auðvitað er fót­bolt­inn þannig að þú ræður ekki hverj­um þú mæt­ir og hverj­ir eru í liði mót­herj­anna. Það er ekki drauma­verk­efnið að mæta syn­in­um. Ég vor­kenni móður hans, Lauf­eyju kon­unni minni, meira. Hún þarf að sitja upp í stúku og halda með báðum liðum. Það má ekki gera þetta að ein­vígi míns og hans. Hvor­ug­ur okk­ar er í aðal­hlut­verki,“ sagði Óskar.

Óskar Hrafn Þorvaldsson er aðalþjálfari meistaraflokks karla. Óskar hefur stýrt liðinu frá árinu 2019. Halldór Árnason er aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla frá 2019. Valdimar Valdimarsson er markmannsþjálfari liðsins. Hann tók við því starfi af Ólafi Péturssyni. Aron Már Björnsson er styrktarþjálfari liðsins síðan 2016. Aron er íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn sem afreksþjálfari hjá elstu flokkum karla í Breiðabliki. Eyjólfur mun einnig vera í þjálfarateymi meistaraflokks karla, þar sem hann mun halda utan um aðlögun yngri leikmanna inn í meistaraflokkshópinn. Í sjúkraþjálfarateyminu eru þær Særún Jónsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Marinó Önundarson og Alex Tristan Gunnþórsson eru liðsstjórar.

image

Dagskrá

Breiðablik og FCK mætast á Kópavogsvelli í 2. umf undankeppni Meistaradeildar UEFA 2023/24, þriðjudaginn 25. júlí kl.19:15!

Uppselt er á leikinn en miðar voru seldir á Stubbur app.

Græna stofan verður opin fyrir leik, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni. Blikaklúbburinn kynnir og selur Breiðabliksvarning.

Hlið vallarins opna kl.18:00! Minnum á að mæta tímanlega því skanna þarf alla miða við hliðin.

Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Bein textalýsing UEFA hér. 

Dómarar eru frá Ungverjalandi. Dómari: Gergo Bogár. Aðstoðardómarar: Theodoros Georgiou og Balázs Szalai. Fjórði dómari: Balázs Berke. Myndbandsherbergi: Tamás Bognár og Katalin Kulcsár.

Það verður enn eitt Evrópu Blikakvöld á Kópavogsvelli á þriðjudaginn!

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

image

image

Til baka