Ótrúlega flottur árangur hjá Blikanum Jóhanni Berg Guðmundssyni að vera búinn að ná að leika 100 með AZ aðeins 22 ára gamall.
Árið 2008 lék Jói 25 leiki í deild og bikar með Breiðabliki og skoraði 9 mörk! þrjú þeirra eru sérstaklega minnistæð: (a) þegar kann klobbaði markvörð KR-inga á 4. mín í heimaleiknum við KR og (b) jöfnunarmarkið sem hann skoraði í Grinadvík og (c) þruman frá miðju á móti Keflavík í 20. umferðini er gríðarlega fallegt mark.
Fagmaður á ferð enda var hann keyptur út eftir aðeins eitt sumar með okkur - þá 18 ára gamall.
Nánar um Jóhann hér.