T
Breiðablik
1 4
Víkingur
A-deild 12. umferð Kópavogsvöllur 25.06.2026
24
12

Blikaliðið lenti í kröppum dansi á Kópavogsvelli í gær og tapaði 1:4 fyrir Íslandsmeisturum Víkings. Sigur gestanna var sanngjarn en full stór miðað við gang leiksins.En það þýðir ekkert að gráta Björn bónda, heldur safna liði og leita hefnda eins Ólöf ríka Loftsdóttir sagði eftir að bóndi hennar var veginn af enskum sjómönnum árið 1467. Við mætum Víkingum aftur á sunnudaginn á Mjólkurbikarnum og þá munum við sýna Fossvogsbúum hvar Davíð keypti ölið.

Töluverð meiðsli eru að hrjá Blikaliðið um þessar mundir og gátum við ekki teflt fram okkar sterkasta liði. Á móti öflugu liði eins og Víkingum þá munar um hvern reyslubolta.Gárungarnir í stúkunni göntuðust með að það munaði ca 600 kg á liðinum tveimur! En grínlaust þá var fyrri háfleikur í ágætu jafnvægi. Gestirnir sóttu nokkuð á okkur fyrstu mínúturnar og uppskáru mark strax á áttundu mínútu. En eftir það náðu strákarnir okkar ágætlega að glíma við þá röndóttu. Meðal annars átti Kristinn Jónsson hörkuskot að marki Víkinga sem okkar gamli félagi Aron Snær varði frábærlega. Staðan því 0:1 þegar liðinu gengu til búningsherbergja.

Seinni hálfleikur var ágætu jafnvægi þótt gestirnir væru ívið sterkari. Stundum sýndum við þeim of mikla kurteisi og það hefði stundum alveg mátt ganga harðar til leiks í varnarleiknum. En andartaks mistök urðu þess valdandi að þeir röndóttu tvöfölduðu forskot sitt á 63. mínútu. Þá var hamarinn orðinn nánast ókleyfur. Ekki batnaði útlitið þegar við gáfum óþarfa vítaspyrnu nokkrum mínútum síðar. Þjálfararnir ákváðu þá að skipta ferskum leikmönnum inn á enda mikilvægt að hvíla lykilleikmenn fyrir bikarleikinn á sunnudag. Það tekur alltafsmá tíma að stilla liðið saman á nýjan leik og á meðan bættu Víkingar við fjórða markinu. En sem betur minnkaði hinn ungi og efnilegai Arnar Bjarki Gunnleifsson muninn með góðu marki skömmu fyrir leiklok.

Það þýðir ekkert að dvelja of lengi við þennan leik. Við teflum fram sterkara liði á sunnudaginn og sýnum hvað í okkur býr. Í lokin er vert að minnast á innkomu Jónatans Guðna Arnarssonar í leiknum. Hann sýndi mikla áræðni í sóknarleiknum og lofar frammistaða hans góðu varðandi áframhaldið i sumar.

-AP