BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Patrik Johannesen í Breiðablik

23.11.2022 image

Grafík: Halldór Halldórsson

Breiðablik og Keflavík hafa gert með sér samkomulagi þess efnis að færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen gangi til liðs við Breiðablik. Í kjölfarið hefur Patrik skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Patrik er sóknarsinnaður leikmaður sem getur leikið allar fremstu stöður vallarins. Patrik lék 26 leiki með Keflavík í á nýliðnu tímabili og skoraði í þeim 18 mörk.

Leikmaðurinn hefur lengst af á sínum ferli leikið í Færeyjum auk þess sem hann á tvö tímabil að baki í Noregi.

Alls hefur hann leikið 210 keppnisleiki á ferlinum og skorað í þeim 91 mark.

Patrik á að baki 20 landsleiki fyrir Færeyska landsliðið og er fastamaður í færeyska landsliðshópnum.

Við bjóðum Patrik hjartanlega velkominn í Breiðablik og hlökkum til að sjá hann á vellinum.

image

Patrik Johannesen

Til baka