BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Ólafur Hrafn með samning við Blika

21.10.2015

Miðju- og sóknarmaðurinn ungi og efnilegi Ólafur Hrafn Kjartansson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Hinn 18 ára gamli Ólafur Hrafn kom til okkar Blika í vor frá KA og átti sinn þátt í því að 2.flokkur Blika varð Íslandsmeistari í ár. Ólafur Hrafn á að baki 5 meistaraflokksleiki með KA í deild og bikar en hann hefur ekki enn spilað leik í efstu deild.

Ólafur Hrafn hefur spilað 8 landsleiki með U-17 ára og 3 leiki með U-16 ára landsliði Íslands.  Blikar binda miklar vonir við að Ólafur Hrafn eigi eftir að taka stórstígum framförum á næstu árum og verði mikilvægur hlekkur í meistaraflokki Breiðabliks í náinni framtíð.

-AP

Til baka