BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Ólafur H. Kristjánsson nýr yfirmaður knattspyrnumála.

25.02.2022 image

Á myndinni má sjá Ólaf H. Kristjánsson yfirmann knattspyrnumála og Flosa Eiríksson formann knattspyrnudeildar Breiðabliks við undirritun á samningi.

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur ráðið Ólaf H. Kristjánsson sem yfirmann knattspyrnumála hjá Breiðabliki. Ráðningin er hluti af stefnumörkun deildarinnar og mun Ólafur meðal annars bera ábyrgð langtíma faglegri stefnumótun, þróun leikmanna, og frekari uppbyggingu á innra starfi knattspyrnudeildarinnar.

Ólafur mun heyra beint undir Eystein Pétur Lárusson framkvæmdastjóra Breiðabliks.

Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks segir „Við erum feykilega spennt fyrir þessari ráðningu, með henni erum við að halda áfram að efla faglegt starf og framþróun innan knattspyrnudeildarinnar. Ólafur mun vinna náið með þjálfurum og starfsfólki og styðja enn frekar við það frábæra starf sem unnið hefur verið undanfarin ár innan deildarinnar og gera gott félag enn betra.

Ólafur H. Kristjánsson hefur mikla þekkingu og reynslu og hann segir: “Ég er að koma inn í frábært félag þar sem hefur verið unnið virkilega gott starf á undanförnum árum. Ég tel mig þekkja klúbbinn vel og hef átt frábærar stundir sem þjálfari hjá klúbbnum á árum áður. Nú er ég hins vegar í öðru hlutverki og mun leggja mig allan fram um að byggja ofan á það góða starf sem nú þegar hefur verið unnið innan deildarinnar í samvinnu við starfsmenn og þjálfara. Hlutverkið er m.a. að marka stefnuna til lengri tíma og styrkja grunnþjónustuna og afreksstarfið bæði karla og kvennamegin”

Til baka