BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Mjólkurbikarinn 2021: 32-liða úrslit: Keflavík - Breiðablik

22.06.2021 image

Keflvíkingar taka á móti okkar mönnum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins á HS Orku vellinum í Keflavík á miðvikudagskvöld kl.20:00!

Leið okkar manna í Laugardalinn hefst kl.20:00 á miðvikudaginn með leik gegn spræku liði Keflvíkinga á þeirra heimavelli. Leikurinn er 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla 2021.

Leikurinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport

Sagan

Knattspyrnulið Keflvíkinga er sá andstæðingur sem Breiðablik hefur oftast keppt við í opinberum mótum frá stofnun knattspyrnudeildar Breiðabliks árið 1957.

Innbyrðis mótsleikir liðanna eru 121 frá fyrsta leik liðanna í gömlu B-deildinni 1957 – árið sem Breiðablik tók fyrst þátt í knattspyrnumóti í meistarflokki karla. Leikurinn var annar mótsleikur Blikamanna frá upphafi og fyrsti skráði útileikurinn, en leikið var á Njarðvíkurvelli.  

Mótsleikir liðanna eru 124 eins og áður segir. Sú tala innifelur 37 leiki liðanna í Litlu bikarkeppninni sem hófst árið 1961 fyrir tilstuðlan Alberts Guðmundsson. Mótið var hugsað sem æfingamót fyrir utanbæjarliðin Keflavík, Hafnarfjörð, Akranes og síðar Kópavog vegna Íslandsmóta. Leikin var tvöföld umferð.

Bikarsagan

Liðin eiga að baki nokkra sögulega leiki í bikarnum. 

Í fyrra kom Keflavíkurliðið í heimsókn á Kópavogsvöll í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Það fór svo að okkar menn unnu nauman 3:2 sigur í fjörugum leik þar sem Kristinn Steindórsson fór á kostum og skorði 2 síðustu mörkin þegar hann jafnaði leikinn 2:2 á 81. mín og setti svo sigurmarkið á 86. mín.

13.09 11:12
2009
Keflavík
Breiðablik
2:3
1
Bikarkeppni KSÍ | Undanúrslit
Laugardalsvöllur | #

Undanúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 2009. Blikar skora sigurmarkið á 66. mín og taka svo Bikarmeistaratitilinn það ár með sigri á Fram í vítaspyrnukeppni.

24.07 00:36
2008
Breiðablik
Keflavík
3:2
1
Bikarkeppni KSÍ | 8-liða úrslit
Kópavogsvöllur | #

Aftur mætast liðin á Kópavogsvelli í 8-liða úrslitum. Blikar vinna 3:2 sigur í fjörugum leik.

12.08 18:00
2007
Breiðablik
Keflavík
3:1
1
1
Bikarkeppni KSÍ | 8-liða úrslit
Kópavogsvöllur | #

Liðin mætast í 8-liða úrslitum á Kópavogsvelli árið 2007.

14.07 01:18
1994
Breiðablik
Keflavík
4:3
3
2
1
Bikarkeppni KSÍ | 16-liða úrslit. Framlenging og vitaspyrnukeppni
Kópavogsvöllur | #

Árið 1994 mætast liðin í 16-liða úrslitum á Kópavogsvelli í fjörugum leik sem fer í framlengingu og vító.

25.07 20:00
1973
Keflavík
Breiðablik
5:0
1
Bikarkeppni KSÍ | 16-liða úrslit
Keflavíkurvöllur | #

1973 fara Blikar til Keflavíkur í 16-liða úrslitum og steinliggja 5:0.

10.10 00:41
1971
Keflavík
Breiðablik
1:2
3
Bikarkeppni KSÍ | 12 liða úrslit
Keflavíkurvöllur | #

Árið 1971 er Breiðablik með mjög öflugt lið. Eru í A-deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Keflvíkingar voru hinsvegar með besta liðið 1971 urðu Íslandsmeistarar. Leikur liðanna var í 12-liða úrslitum og spilaður í Keflavík. Blikar unnu leikinn og líka leikinn við Val í 8-liða og einnig undanúrslitaleikinn við Fram, en töpuðu úrslitaleiknum gegn Víkingum sem lék það ár í 2. deild.

23.09 18:40
1962
Breiðablik
Keflavík
1:6
4
Bikarkeppni KSÍ | 3. umferð
Framvöllur | #

Fyrirkomulag Bikarkeppni KSÍ árið 1962 var þannig að ef lið gerðu jafntefli þurfti að leika að nýju á hlutlausum velli. Í 1.umf gerðu Blikar 0:0 jafntefli við Víkinga. Seinni leikurinn var leikinn á Hvaleyrarholtsvelli í Hafnarfirð og aftur gera liðin jafntefli (3:3). Þriðji leikur liðanna fór svo fram á Melavellinum. Blikar unnu þann leik 0:3 og kepptu við ÍBH (Íþróttabandalag Hafnarfjarðar) í 2.umf og unnu leikinn 4:5. Í 3.umf mæta Blikar Keflvíkingum á Framvellinum og tapa stórt.

Leikurinn

Leið okkar pilta í Laugardalinn hefst kl.20:00 á miðvikudaginn með leik gegn spræku liði Keflvíkinga á þeirra heimavelli. Leikurinn er í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla 2021.

Þar sem enn eru nokkrar hömlur á mætingu á völlinn vegna Covid-19 þarf að tryggja sér miða fyrirfram. Það er gert á Stubb appinu stubbur.app Miðaverð er 2.000 kr. Einnig verða miðar seldir á staðnum í gegnum posa.

Ekki kemur fram á heimasíðu Keflvíkinga hver margir geta mætt á völlinn því er mikilvægt að tryggja sér miða sem fyrst!

Leikurinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport

MInnum á að árskort gilda ekki á bikarleiki.

Flautað verður til leiks kl.20:00!

Stuðningur áhorfenda skiptir miklu máli og hvetjum við alla Blika til að mæta á leikinn í Keflavík og hvetja strákana til sigurs og tryggja sæti í 16-liða úrslitum.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar.

image

Til baka