Meistaradeild UEFA 2025/26: Lech Poznan - Breiðablik 22. júlí kl.18:30
20.07.2025
Þriðja viðureign Breiðabliks í undankeppni Meistardeildar UEFA keppnistímabilið 2025/26 er gegn stórliðinu og pólsku meisturunum Lech Poznan. Flautað verður til leiks á Stadium Poznan í Poznan í Póllandi k.18:30 á þriðjudaginn.
Leikurinn verður sýndur í beinni á Sýn Sport. Útsending hefst kl.18:20!
Blikaklúbburinn ætlar að hittast á Mossley á Kársnesinuu og horfa saman þar, tilboð á mat og drykk frá 16:00 og þar til leik lýkur. Allir Blikar velkomnir.
50. Evrópuleikurinn
Leikurinn við Lech Poznan verður 50. viðureign Breiðabliksliðsins í Evrópukeppnum frá fyrsta Evrópuleiknum í júlí 2010. Á þeim þeim 15 árum sem eru liðin hefur Blikaliðið spilað 49 leiki í Evrópukeppnum UEFA við lið frá 26 löndum. Ekkert íslenskt knattspyrnulið hefur spilað jafn marga Evrópuleiki og Breiðablik á þessu 15 ára tímabili.
Breiðablik hefur líka unnið stærstu sigrana undankeppnum Meistardeildar UEFA. Þegar forkeppni Meistardeildarinnar var haldin á Kópavogsvelli sumarið 2023 unnu Blikar 7:1 sigur á Tre Penne og 5:0 sigur á Buducnost.
Í seinni leiknum gegn KF Egnatia í undankeppni Meistaradeildar UEFA 2025/26, sem leikinn var á Kópavogsvelli á þriðjudaginn var, vann Blikaliðið öruggan 5:0 sigur:


Um andstæðinginn
Lech Poznan er eitt af stærstu og sögufrægustu knattspyrnufélögum Póllands, með ríka arfleifð og sterka tengingu við járnbrautarsögu landsins. Félagið er stofnað 19. mars 1922 sem KS Lutnia Dębiec. Gælunöfn: Kolejorz („Járnbrautarmaðurinn“), Duma Wielkopolski („Stolt Stór-Póllands“). „Lech“ er nafn goðsagnakennds stofnanda pólsku þjóðarinnar. „KKS“ stendur fyrir Kolejowy Klub Sportowy – „Járnbrautarsportfélagið“ en félagið var lengi tengt pólsku ríkisjárnbrautunum og hefur varðveitt þá arfleifð í merki og gælunöfnum.
Lech Poznań er ekki bara stórt félag í Póllandi – það er líka menningarlegur burðarás í Poznań og hefur verið stöðugt í fremstu röð í pólskri knattspyrnu í áratugi.
Heimborg félagsins er Poznań í Póllandi. Leikvöllurinn, Stadium Poznan, rúmar liðlega 42.000 áhorfendur.
Liðið hefur mætt stórliðum í Evrópu eins og Barcelona, Liverpool og Olympique Marseille
Evrópusaga Lech Poznan
Fyrsta þátttaka í UEFA keppni var árið 1978. Minnistæð viðureign við Barcelona árið 1988 – Lech tapaði aðeins í vítakeppni eftir tvö 1–1 jafntefli
Robert Lewandowski er án efa þekktasti leikmaður félagsins.
Við þekkjum hinsvegar leikmanninn Gísli Gottskálk Þórðarson. Gísli er uppalinn Bliki en fór ungur frá Breiðabliki til Bologna á Ítalíu.
Árangurstafla Lech Poznan í Evrópukeppnum fyrir leikina gegn Breiðabliki:
Lech Poznan - Ekstraklasa meistarar í Póllandi 2025
Evrópusaga Breiðabliks
Karlalið Breiðabliks hefur spilað 49 Evrópuleiki frá 2010 til 2025 og mætt yfir 30 mismunandi liðum frá Evrópu. Þeir hafa tekið þátt í öllum helstu UEFA keppnum: Meistaradeild, Evrópudeild og Sambandsdeild.
Fyrsti Evrópuleikur liðsins var gegn Motherwell í Skotlandi 15. júlí 2010. Síðan þá hefur Breiðablik tekið þátt í Evrópukeppnum í 11 ár af 16 mögulegum - þar af 7 ár í röð.
Leikurinn við Lech Poznan á þriðjudaginn verður 50. Evrópuleikur karlaliðs Breiðabliks frá upphafi. Þátttaka Breiðabliks í Evrópumótum:
- Meistaradeild: 2025, 2023, 2011.
- Evrópudeild: 2023, 2020, 2019, 2016, 2013, 2010.
- Sambandsdeild: 2024, 2023, 2022, 2021.
Andstæðingar Blika í Evrópukeppnum frá upphafi:
2025 - Lech Poznan, FK Egnatia.
2024 - Drita - Tikvesh.
2023 - KAA Gent, Zorya Luhansk, Maccabi Tel Aviv, FC Struga - Zrinjski Mostar, FC Copenhagen, Shamrock Rovers, Buducnost Podgorica, Tre Penne.
2022 - Istanbul Basaksehir, Buducnost Podgorica, UE Santa Coloma.
2021 - Aberdeen, Austria Wien, Racing Union.
2020 - Rosenborg.
2019 - Vaduz.
2016 - Jelgava.
2013 - Aktobe, Sturm Graz, FC Santa Coloma.
2011 - Rosenborg.
2010 - Motherwell.
Samtals 49 leikir við lið frá 26 löndum.
Breiðablik - Íslandsmeistarar 2024
Evrópuhópurinn
Þrír leikmenn í núverandi leikmannahópi tóku þátt í fyrsta Evrópuleik karlaliðs Breiðabliks 15 árum. Þetta eru leikmennirnir Andri Rafn Yeoman, Kristinn Steindórsson og Kristinn Jónsson. Höskuldur Gunnlaugsson hefur verið duglegar að skora mörk í Evrópuleikjum, en markahrókurinn Kristinn Steindórsson var fyrstur núverandi leikmanna að skora mark fyrir blikaliðið í Evrópukeppni þegar hann skoraði seinna markið í 2:0 sigri á Rosenborg í undankeppni Meistaradeildarinnar á Kópavogsvelli 20. júlí 2011.
Evrópuhópur Breiðabliks 2025/26
Dagskrá
Flautað verður til leiks Poznan Stadium í Poznan kl.18:30 á þriðjudaginn.
Leikurinn verður sýndur í beinni á Sýn Sport. Útsending hefst kl.18:20!
Blikaklúbburinn ætlar að hittast á Mossley á Kársnesinuu og horfa saman þar, tilboð á mat og drykk frá 16:00 og þar til leik lýkur. Allir Blikar velkomnir.
Dómarar eru frá Belgíu. Aðaldómari er Jasper Vergoote. Aðstoðardómarar eru: Martijn Tiesters og Michael Geerolf. Fjórði dómari: Simon Bourdeaud'hui. Myndbandsherbergi: Bert Put og Kevin Van Damme,
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
PÓÁ