,,Lok, lok og læs og allt í stáli,“ söng Ómar Ragnarsson svo eftirminnilega árið 1965. Segja má að þau orð Ómars hafi verið viðeigandi umsögn um leik Keflavíkur og Blika í Bestu deildinni í sunny Kef í gær. Hvorugu liðinu tókst að skora enda læstu varnarmenn liðanna öllum leiðum að markinu. Blikar eru því taplausir eftir þrjár umferðir en stuðningsmenn liðsins voru samt frekar súrir með bitleysi sóknarleiks sinna manna.
HS-grasvöllur heimamanna var ekki upp á marga fiska í gær. Þungur og laus í sér og greinilegt að léttleikandi lið okkar pilta átti í töluverðum erfiðleikum að fóta sig. Heimapiltar héldu hins vegar upp á fyrsta heimaleik sinn í Bestu deildini í mörg ár með fínni spilamennsku og mikilli baráttu. Okkar pilta komust varla yfir miðju fyrstu 20 mínútur leiksins og fór um stuðningsmenn Blika í stúkunni sem voru þó nokkuð margir. Frekar þungt var til dæmis yfir þeim frændum Sverri Davíð Haukssyni og Húgó Rasmus sem létu sig ekki vanta frekar en fyrri daginn.
En sem betur fer áttu þeir félagar Ívar Örn Árnason og Ásgeir Helgi Orrason stórleik í vörn Blika. Þeir stigu vart feilspor í leiknum og eiga hrós skilið fyrir frammistöðu sína. Miðju og sóknarmenn Blikaliðsins hafa hins vegar átt betri dag. Taka verður tillit til þess að Ágúst Orri lá heima í Kópavoginum lasinn og munar um minna! Við náðum samt að skapa okkur nokkur góð færi sem við hefðum átt að nýta okkur. En það gekk ekki eftir og því varð markalaust jafntefli niðurstaðan. Hins vegar verður að hrósa ungum leikmanni, Birki Þorsteinssyni fæddum árið 2009, sem kom inn á síðari hálfleik. Hann sýndi góða takta og verður gaman að fylgjast með honum i framtíðinni.
Næsti leikur Blikaliðsins er gegn hinum nýliðunum í deildinni, Þór frá Akureyri, á mánudaginn á Kópavogsvelli kl.19.15. Þar ætla drengirnir okkar að sýna sömu takta í vörninni en fríska mikið upp á sóknarleikinn. Þá verður gaman á Kópavogsvelli!
Þess má í lokin geta að plötuútgefandinn Svavar Gests gaf út lok-lok og læs lag Ómars Ragnarssonar á smáskífu með þremur öðrum lögum sem hafa lifað góðu lífi með þjóðinni í rúm 60 ár. Þetta eru lögin; Ég er að baka, Ligga ligga lá, Sumar og sól og Lok lok og læs. Ómar samdi tvö laganna en alla textana. Platan fékk prýðilega dóma í Morgunblaðinu en dóminn ritaði reyndar sjálfur – Svavar Gests. Munum við því það eru sigurvegararnir sem skrifa söguna- við Blikar ætlum að skrifa okkar eigin sögu í sumar með góðum stuðningi áhorfenda!
Áfram Blikar- alltaf- alla leið!
AP