BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Kiddi Steindórs framlengir

06.06.2025 image

Ánægjuleg tíðindi! Einn okkar ástsælasti og markahæsti leikmaður meistaraflokks karla í efstu deild, Kristinn Steindórsson, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til loka keppnistímabilsins 2026.

Kristinn, sem er fæddur árið 1990, er uppalinn Bliki og á að baki hvorki fleiri né færri en 313 leiki í öllum keppnum fyrir Blika og hefur skorað í þeim 85 mörk. 

Kristinn er lang markahæstur Blika í efstu deild karla með 60 mörk í 188 leikjum.

Þá hefur Kristinn spilað stóra rullu í öllum þremur Íslandsmeistaratitlum félagsins, auk bikarmeistaratitilsins.

 Til hamingju með nýja samninginn, Kristinn. Og til hamingju Breiðablik!

Ferill til þessa

2007: Kristni skaut fyrst upp á sjónarsviðið árið 2007 þá aðeins 17 ára gamall. Það ár lék hann 19 mótsleiki fyrir Breiðablik og skoraði 6 mörk.

2009/2010: Stjarna Kristins reis hátt árið 2009 þegar Breiðabliksliðið varð Bikarmeistari og svo ekki síður árið 2010 þegar hann myndaði eitraða framlínu Breiðabliks með Alfreð Finnbogasyni. Kristinn skoraði 12 mörk í efstu deild Íslandsmeistaraárið 2010 og var ein af stjörnum Íslandsmeistara Breiðabliks það keppnistímabil.

2012: Kristinn, eða Kiddi Steindórs eins og hann er kallaður, hélt út í atvinnumennskuna árið 2012 og spilaði lék samtals 162 leiki með Halmstad og Sundsvall í Svíþjóð og Columbus Crew í Bandaríkjunum.

2018: Kristinn kemur heim frá Svíþjóð og skrifar undir samning við FH og spilar 32 leiki með Fimleikafélaginu.

2020: Kiddi Steindórs kemur heim í Kópavoginn.

Kristinn á að baki 3 A landsleiki og 27 leiki með yngri landsliðum Íslands. Mörkin í þessum leikjum voru 8.

Við óskum Kristni og Blikum til hamingju með þennan samning og hlökkum til að sjá hann áfram í grænu treyjunni.

View this post on Instagram

A post shared by Knattspyrnudeild Breiðabliks (@breidablik_fotbolti)

Til baka