BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Kiddi Jóns kominn heim!

10.12.2023 image

Það ánægjulegu tíðindi bárust í gær að einn af okkar bestu sonum, Kristinn Jónsson, sé kominn heim í Kópavoginn á nýjan leik.

Kristinn sem er fæddur árið 1990 var einn þessum ungu og efnilegum drengjum sem tók við gunnfánanum í Blikaliðinu árið 2007-2008 þegar efnahagsþrengingar urðu þess valdandi að nánast eingöngu var veðjað á pilta alda upp hjá félaginu. 

Hann spilaði nokkra leiki árið 2007 en var síðan orðinn lykilmaður árið 2008. Það þarf vart að rifja upp að við unnum fyrsta bikarmeistaratitil félagsins árið 2009.

 

 

 

Og síðan fylgdi Íslandsmeistaratitillinn í kjölfarið árið 2010. Kristinn var algjör lykilmaður í  báðum þessum titlum.

 

 

 

Kristinn reyndi fyrir sér í atvinnumennsku í Skandinavíu

Í lok árs 2013 fór Kristinn til Brommapojkarna í Svíþjóð og spilaði með þeim sem lánsmaður frá Breiðabliki sumarið 2014. Eftir flott keppnistímabil með Blikum árið 2015 óskaði norska úrvalsdeildarliðið Sarpsborg 08 eftir starfskröftum Kristins. Kristinnn spilaði í Noergi fram yfir mitt ár 2017. Það var mikil blóðtaka fyrir Blikaliðið að missa Kristinn enda var hann einn besti leikmaður Pepsí-deildarinnar sumarið 2015. Morgunblaðið valdi Kristinn leikmann ársins árið 2015. Það gladdi því margan Blikann í lok júlí 2017 að lesa þau frábæru tíðindi að Kristinn væri kominn frá Noregi til að leika með Breiðablikliðinu til loka keppnistímabilsins 2017, en Kiddi söðlaði um eftir keppnistímabilið og gerði samning við KR þar sem hann hefur verið síðustu 6 ár og spilað 155 leiki og skorað 10 mörk sem fastamaður í KR-liðinu. Kiddi Jóns: Hoppaði fram og til baka með þessa ákvörðun. 

Kristinn á að baki 221 keppnisleiki með Blikaliðinu og hefur skorað 15 mörk fyrir okkur. Hann er 9. leikjahæsti leikmaðurinn í núverandi leikmannahópi Blika. Kristinn hefur spilað 8 A landsleiki fyrir Íslands hönd og 33 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Viðurkenningar

Í bókinni Íslensk Knattspyrna 2015 birtist grein um vinstri bakvörðinn Kristinn Jónasson: "Kristinn Jónsson, vinstri bakvörður Breiðabliks, gaf flestar stoðsendingar í úrvalsdeild karla 2015, alls 9 í 22 leikjum. Kristinn endaði þar með fjögurra ára einokun FH-inga og varð bæði fyrsti bakvörðurinn og fyrsti Blikinn sem leggur upp flest mörk í deildinni síðan var farið að taka stoðsend ingarnar saman 1992. Öll fréttin HÉR. 

Maí 2011. Viðurkenningin fyrir 100 mótsleiki með Breiðabliki. Júlí 2015: Viðurkenning fyrir 200 mótsleiki með Blikum.

Kristinn heldur áfram þar frá sem frá var horfið nú þegar hann er aftur kominn í grænu treyjuna. Hann á 148 leiki að baki í efstu deild í grænu - samtals 268 leiki í efstu deild með KR og Breiðabliki og er orðinn 11. leikjahæsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar karla á Íslandi. Með leikjunum í Skandinavíu á Kiddi samtals 300 deildaleiki á ferlinum en hann lék 300. leikinn í lokaumferð Bestu deildarinnar í október. 

Velkominn heim á Kópavogsvöll Kristinn Jónsson!

PÓÁ

image

Í leik á Kópavogsvelli 2017.

Til baka