BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Góður sigur á FH í kuldanum á Kópavogsvelli

20.02.2026 image

Blikar unnu góðan 1:0 sigur á FH í Lengjubikar karla á Kópavogsvelli í gær. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur en gullfallegt mark Viktors Karls Einarsson undir lok leiksins gerði gæfumuninn. Reyndar var ótrúlegt að fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum enda áttu bæði lið fullt af færum. En stórleikur Antons Ara í markinu kom í veg fyrir að gestirnir kæmu tuðrunni í markið.

Blikar tefldu fram sterku liði í gær. Varnarmaðurinn Kristinn Narfi Björgvinsson, ættaður úr Hrísey eins og nafnið hans gefur til kynna, var sá eini í byrjunarliðinu sem ekki var með mikla leikreynslu úr efstu deild. En hann stóð sig með sóma og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Aðrir ungir leikmenn sem komu við sögu voru Gabríel Snær, Bjartur Orri og þeir Gunnleifssynir, Arnar Bjarki og Gunnleifur Orri, sem komu inn á sem varamenn og sýndu góða takta. Ásgeir Helgi, Anton Logi og Valgeir Valgeirsson eiga við meiðsli að stríða og Kristófer Ingi var veikur í gær. Svo var Ívar Örn staddur fyrir norðan að pakka niður fyrir sunnanferðina!

Næsti leikur Blikastrákana er gegn Leikni á Kópavogsvelli á miðvikudaginn kl.19.00

-AP

Til baka