BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Fréttatilkynning frá Knattspyrnudeild Breiðabliks

22.05.2017

Breiðablik hefur ráðið Milos Milojevic þjálfara meistaraflokks karla. Milos er reynslumikill þjálfari, einn af fáum þjálfurum á Íslandi með UEFA Pro gráðu. Breiðablik hlakkar  til samstarfsins við Milos og býður hann velkominn til starfa.

Olgeir Sigurgeirsson, leikjahæsti leikmaður meistaraflokks karla frá upphafi hjá félaginu, verður aðstoðarþjálfari.

Stjórn knattspyrnudeildar vil sérstaklega þakka Sigurði Víðissyni frábært og óeigingjarnt starf við þjálfun liðsins tímabundið, og einnig öðrum samstarfsmönnum í þjálfarateyminu þeim Páli Einarssyni og Úlfari Hinrikssyni. 

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Viðtal við Milos í boði BlikarTV

Til baka