BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Brynjar Atli til Blika

28.01.2020

Markvörðurinn ungi og efnilegi, Brynjar Atli Bragason, hefur gengið til liðs við Breiðablik frá uppeldisfélaginu sínu Njarðvík.

Brynjar Atli verður tvítugur á þessu ári og þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki yfir 70 leiki með meistaraflokki. Þar að auki hefur hann spilað sex leiki með yngri landsliðum Íslands.

Það er mikið fagnaðarefni fyrir Blika að fá þennan efnilega markvörð til félagsins. Ljóst er að hann getur lært mikið af þeim öflugu markvörðum sem eru fyrir hjá félaginu.

Fyrir keppnistímabilið mun Brynjar Atli svo fara á láni til þess að öðlast enn meiri leikreynslu í meistaraflokki.

Velkominn Brynjar Atli 

Til baka