BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Golfmót Breiðabliks 2022 - UPPSELT!

16.07.2022 image

* UPPSELT ER Í MÓTIÐ *

Sautjánda opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 12. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir og má reikna með að uppselt verði í mótið eins og undanfarin ár.

Ræst verður af af öllum teigum kl.13:00.(Mæting í skála 12:15)
Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;

Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
Verðlaun - fyrir lengsta teighögg karla og kvenna (á braut).
Dregið úr skorkortum.

Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28.

Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði, strax að móti loknu.
Þáttökugjald er kr. 6.940 og er málsverður innifalinn (Pizza hlaðborð og kaffi )

Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com 
Rita skal "Golfmót Breiðabliks 2022" í "efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt aðildarnúmeri hjá golfklúbbi, símanúmeri og/eða netfangi.

Mótið er öllum opið og sem fyrr lofum við góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.

Áfram Breiðablik !

image

Selsvöllur á Flúðum.

Til baka