BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik OPEN 2021

14.07.2021 image

16. opna golfmót Knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 20. ágúst n.k.

Leikið verður á Selsvellli á Flúðum og mæting í skála er í síðasta lagi kl.12:15.

Ræst verður af af öllum teigum kl.13:00.

Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;

Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
Verðlaun - fyrir lengsta teighögg, karla og kvenna (á 18. braut).
Dregið úr skorkortum.

Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði, strax að móti loknu.

Þáttökugjald er kr. 5.400 og er málsverður innifalinn (Pizzahlaðborð)

Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com

Rita skal "Golfmót Breiðabliks 2021" í "efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt aðildarnúmeri hjá golfklúbbi, símanúmeri og/eða netfangi.
Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl. 

Mótið er öllum opið og sem fyrr lofum við góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.

Síðast og þar áður var uppselt !

Áfram Breiðablik !

image

Til baka