BOSE Bikarinn 2023: Breiðablik - KR
22.11.2023Breiðablik hefur tvisvar unnið BOSE Bikarinn – myndin er frá 2017.
Fyrirkomulag BOSE Bikarsins 2023.
Næsti leikur Blikaliðsins í mótinu er á föstudaginn þegar ferskir KR-ingar koma í heimsókn á Kópavogsvöll. Flautað verður til leiks kl.19:00!
Leikurinn um síðustu helgi og leikurinn gegn KR á föstudaginn eru nauðsynlegur og kærkominn undirbúningur fyrir næsta leik í Sambandsdeild UEFA 30. nóvember þegar við mæturm Maccabi Tel Aviv á Laugardalsvelli.
Áhugaverður punktur er að undirbúningur yfirstandandi keppnistímabils hjá Blikaliðinu hófst einmitt með leik í BOSE-mótinu laugardaginn 3. desember í fyrra. Breiðablik er því fyrsta liðið í sögu BOSE-mótsins til að taka þátt í tveimur BOSE-mótum á einu og sama keppnistímabili.
Riðill 1
Víkingur
Valur
FH
Riðill 2
Stjarnan
Breiðablik
KR
laugardagurinn 18. nóvember
12:00 Breiðablik 3 - Stjarnan 0 (Kópavogsvöllur) Riðill 2
föstudagurinn 24. nóvember
19:00 Breiðablik - KR (Kópavogsvöllur) Riðill 2
Leikir um sæti fara fram 12. - 16. desember
Sigurvegari BOSE Bikarsins fær að launum frábæran BOSE hátalara fyrir félagið sitt.
BOSE Bikarinn síðan 2012
Ellefu ár eru síðan BOSE Bikarinn hóf göngu sína sem æfingamót - spilað í nóvember og desember. Aðeins tvö félög, KR og Breiðablik, hafa unnið mótið oftar en einu sinni
Árið 2012. Fjölnir, Fylkir, Valur og Þróttur tóku þátt í fyrsta mótinu árið 2012. BOSE Meistari: Fylkir
Árið 2013. Breiðablik tók fyrst þátt í mótinu 2013. Önnur lið það ár: KR, Fylkir og Fjölnir. BOSE Meistari: KR
Árið 2014. Þáttökulið: Stjarnan, KR, Víkingur R. og Fjölnir. BOSE Meistari: Víkingur R.
Árið 2015. Liðum fjölgað í 6. Sigurvegarar riðlanna spila til úrslita, liðin í 2. sæti spila um 3. sætið og liðin í 3 sæti spila um 5. sætið. Liðin: Víkingur R., Fjölnir, Stjarnan, FH, KR og Breiðablik. BOSE Meistari: Stjarnan
Árið 2016. Dregið í riðla í höfuðstöðvum Nýherja. Liðin: FH, KR, Stjarnan, Fjölnir, Víkingur R. og Breiðablik. BOSE Meistari: Fjölnir
Árið 2017. LIðin sem tóku þátt: FH, Fjölnir, KR, Stjarnan, Víkingur R. og Breiðablik. BOSE Meistari: Breiðablik
Árið 2018. HK tók þátt í fyrsta sinn. Liðin eru: FH, HK, KR, Víkingur R., Stjarnan og Breiðablik. BOSE Meistari: KR
Árið 2019. Átta lið tóku þátt. Og BOSE Bikar kvenna kynnt í fyrsta sinn með þátttöku Vals, FH, Keflavík og KR. Hjá körlunum bættust Valur og KA í hópinn. Liðin átta 2019: KA, Stjarnan, Valur, FH, Grótta, Víkingur R., KR og Breiðablik. BOSE Meistari: Valur
Árið 2020. COVID-19
Árið 2021. Sex lið eru skráð til leiks: KR, Stjarnan, FH, Valur, Víkingur R. og Breiðablik. BOSE Meistari: Breiðablik
Árið 2022. Sex lið skráð til keppni. KR, Fram, Víkingur R, Stjarnan, Valur og Breiðablik. BOSE Meistari: KR