Byrjunarlið Breiðabliks var þannig skipað: Anton Ari Einarsson, Ásgeir Helgi Orrason, Ívar Örn Árnason, Viktor Karl Einarsson fyrirliði, Óli Valur Ómarsson, Kristinn Steindórsson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Valgeir Valgeirsson, Davíð Ingvarsson, Kristófer Ingi Kristinsson og Andri Rafn Yeoman.
Mætt var í rigningu og roki á Kópavogsvöll. Blikaborgaranum var sporðrennt og svo beðið eftir því hvaða Breiðablikslið myndi mæta á völlinn. Vonin var að það væri ekki liðið sem átti varla skot á mark í Keflavík fyrir fimm dögum. Uppstillingin kom ekki á óvart. Talsvert er um meiðsli en samt var stillt upp mjög sterku liði.
Leikurinn byrjaði fjörlega, ekki síst Þórsarar sem sóttu undan sterkum vindi. Strax á annarri mínútu komst okkar fyrrverandi, Ágúst Eðvald, einn í gegn en Anton Ari varði frábærlega. Mér leist nú ekkert á blikuna þessar fyrstu mínútur því Þórsarar sóttu af miklum krafti en fljótlega vöknuðu Blikar og fóru að sækja sjálfir. Kristófer Ingi átti fínt skot rétt fram hjá á tólftu mínútu. Davíð átti bylmingsskot á fjórtándu mínútu. Á fimmtándu mínútu skoraði Viktor Karl mark en það var dæmt af vegna mjög tæprar rangstöðu. Á tuttugustu mínútu skoraði Kristófer Ingi svo snyrtilegt mark eftir flotta stungusendingu frá Ágústi Orra. Staðan var orðin eitt núll og Blikahjartað gat andað rólegar.
Blikar héldu áfram að sækja af miklum móð. Davíð komst í flott færi á tuttugustu og annarri mínútu en varnarmaður Þórs fleygði sér fyrir boltann. Á tuttugustu og fimmtu mínútu brenndi Davíð svo af góðu færi. Hann var með boltann í miðjum teig með markið fyrir framan sig en eflaust var vindurinn að stríða honum svo hann hitti boltann illa. Þórsarar héldu líka áfram að fá góðar sóknir. Anton Ari gat ekki hvílt sig neitt í markinu. Hann var enda vel á tánum og varði nokkrum sinnum frábærlega. Þegar flautað var til leikhlés var eiginlega ráðgáta að ekki skyldu hafa verið skoruð fleiri mörk því bæði lið fengu mörg tækifæri.
Í hálfleik kom Aron Bjarna inn í staðinn fyrir Valgeir sem hafði orðið fyrir hnjaski í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn byrjaði af sama fjöri og sá fyrri endaði, en ekkert gekk að skora. Á fimmtugustu og sjöundu mínútu var svo mikið fagnað er Anton Logi „Zidane“ Lúðvíksson kom inn á fyrir Kidda Steindórs. Gríðarlega mikilvægt fyrir Blika að Anton Logi skuli vera að koma til baka af meiðslum fyrr en talið var mögulegt. Enda leið ekki á löngu þar til Anton Logi renndi boltanum í netið á sextugustu og fjórðu mínútu eftir frábæra sendingu frá Aroni Bjarna. Staðan tvö núll.
Þórsarar voru samt síður en svo búnir að gefast upp og Anton Ari varði frábærlega í slána frá sóknarmanni Þórsara og í horn á sjötugustu mínútu. Úr horninu skoraði Þór svo mark. Það var sem betur fer dæmt af vegna hendi.
Á áttugustu og annarri mínútu fóru Kristófer Ingi og Andri Rafn út af fyrir hina ungu og efnilegu Gabríel Snæ og Aron Bjarka. Leikurinn hélt áfram að vera mjög fjörugur og ekkert var hægt að anda léttar fyrr en fimm mínútum fyrir leikslok er Davíð smellhitti hausum á flotta fyrirgjöf frá Óla Val. Þrjú núll. Frábær sókn er byrjaði með hælsendingu frá Antoni Loga á Viktor Karl sem renndi honum á Óla Val sem átti frábæra fyrirgjöf á kollinn á Davíð. Frábær fótbolti.
Stuttu seinna átti Ágúst Orri skot í stöngina. Hinn kornungi Kristinn Narfi kom svo inn á fyrir Ágúst Orra sem var fagnað gríðarlega er hann gekk að varamannabekknum.
Það var svo í uppbótartíma sem Óli Valur renndi boltanum í markið. Niðurstaðan fjögur núll í leik sem hefði alveg eins getað farið átta fjögur.
Breiðablik átti tuttugu og sjö skot en Þór þrettán. Frábær skemmtun á Kópavogsvelli. Blikasóknin vöknuð upp af værum svefni. Ágúst Orri verðskuldað valinn maður leiksins enda virtist hann oft vera á allt öðrum hraða en aðrir á vellinum. Það er frábært á meðan við höfum Ágúst Orra heima en hann er auðvitað allt of góður fyrir þessa deild og á að vera í atvinnumennsku. En er á meðan er. Frábært kvöld á Kópavogsvelli. Allt Blikaliðið stóð sig mjög vel, þar var ekki veikur hlekkur, og blikaborgarinn stóð fyrir sínu eins og alltaf.
Harri