Jæja – eftir 18 daga hlé í Bestu deild karla er loksins komið að leik í Bestu deild karla. Á þriðjudagskvöldið 16. júní kl. 19:15 mætast Stjarnan og Breiðablik í Garðabæ.

Bæði lið nýttu landsleikjahléið í bikarleiki. Stjarnan féll þar óvænt úr leik eftir tap gegn Aftureldingu, en Blikar unnu öruggan sigur á Ægi í Þorlákshöfn og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum, sem fara fram um miðja næstu viku.

Það hefur verið órói í herbúðum Stjörnunnar undanfarnar vikur og Garðbæingar að fara í gegnum þjálfaravandræði á miðju keppnistímabili. Stjarnan, sem fór inn í tímabilið með metnaðarfull markmið, hefur hikstað frá fyrsta degi og situr nú í neðri hluta töflunnar með 10 stig eftir 10 leiki. Leikur liðsins hefur verið óstöðugur og árangurinn langt frá væntingum. Félagið hefur nú stigið skref og ráðið Jón Þór Hauksson sem nýjan aðalþjálfara í stað Jökuls. Jón Þór mun stýra sínum fyrsta leik á móti okkar mönnum á þriðjudaginn næstkomandi.

Frétt um ráðningu Jóns Þórs tekin af facebook síðu Stjörnunnar:

Það munar 5 stigum í stigatöflunni á Breiðabliki í 4. sæti með 15 stig eftir 9 leiki og Stjörnunni í 9. sæti með 10 stig eftir 10 leiki:

Sagan & Tölfræði

Innbyrðis mótsleikir

Innbyrðis mótsleikir Breiðabliks og Stjörnunnar eru 78. Blikar leiða með 38 sigra gegn 27 - jafntefli eru 13.

Efsta deild

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 45. Staðan er okkar mönnum í vil með 25 sigra gegn 11 - jafnteflin eru 9. Skoruð mörk í þessum 42 leikjum er: Breiðablik 90 mörk, Stjarnan 61 mark. Samtals 151 mark. 

Efsta deild á Stjörnuvelli

Leikir liðanna í efstu deild á Samsungvellinum í Garðabæ eru 21. Blikar leiða með 10 sigra gegn 6 - jafnteflin eru 5.

Síðustu 5 viðureignir liðanna í efstu deild í Garðabæ:

S
Stjarnan
2 3
Breiðablik
A-deild 27. umferð - Efri hluti Samsungvöllurinn 26.10.2025
1
14
S
Stjarnan
1 4
Breiðablik
A-deild 13. umferð Samsungvöllurinn 27.06.2025
14
1
13
J
Stjarnan
2 2
Breiðablik
A-deild 18. umferð Samsungvöllurinn 11.08.2024
1
11
S
Stjarnan
0 2
Breiðablik
A-deild 5. umferð Samsungvöllurinn 04.05.2023
1
11
T
Stjarnan
5 2
Breiðablik
A-deild 16. umferð Samsungvöllurinn 07.08.2022
10

Hópurinn

Uppalinn Bliki, Guðmundur Kristjánsson, leikur með Stjörnunni. Guðmundur spilaði 136 mótsleiki og skoraði 36 mörk með Breiðabliki á árunum 2006-2012 og var sterkur póstur í Bikarmeistaraliði Breiðabliks 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010. Varnarmaður Stjörnunnar, Sindri Þór Ingimarsson, er uppalinn Bliki. Og Blikinn Benedikt V. Warén leikur nú með Stjörnunni. Benó spilaði 31 mótsleik og skoraði 5 mörk á árunum 2019 til 2022.

Okkar maður Kristófer Ingi Kristinsson er uppalinn hjá Stjörnunni en hélt mjög ungur út í atvinnumennsku og náði þ.a.l. aðeins einum mótsleik með Stjörnuliðinu. Óli Valur Ómarsson, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, kom til Breiðabliks fyrir keppnistímabilið frá sænska félaginu Sirius og skrifaði undir 4 ára samning við Breiðablik til ársins 2028. Í þjálfarateymi Breiðabliks eru einn fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar. Haraldur Björnsson markmannsþjálfari með 138 leiki fyrir Stjörnuna á árunum 2017-2022.

Meistaraflokkur 2026

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn Stjörnunni alinn upp í Vestmannaeyjum og en búið meira og minna í Kópavogi frá 16 ára aldri. Spilaði fótbolta með ÍBV í gegnum yngri flokkana og hefði líklega aldrei trúað því sem ung stelpa að hún myndi kalla sig Blika einn daginn. En eftir að hafa starfað hjá Breiðablik sem framkvæmdastjóri í tæp 2 ár og börnin fóru að æfa íþróttir í Smáranum er Blikahjartað orðið ansi stórt.

Tanja Tómasdóttir - Hvernig fer leikurinn?

Leikir Breiðabliks og Stjörnunnar hafa undanfarið verið gríðarlega skemmtilegir og spennandi. Þetta verður alvöru verkefni fyrir okkar stráka og má búast við því að Stjarnan mæti vel gíraðir á Samsung völlinn með nýjan þjálfara í brúnni. Strákarnir munu þó fylgja eftir góðum sigri á Ægi í bikarnum og klára þetta 3-1. Kristófer heldur uppteknum hætti og skorar 1mark en Ágúst Orri og Óli Valur komast einnig á blað.

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Tanja Tómasdóttir

Dagskrá

Flautað verður til leiks á Samsungvellinum í Garðabæ kl.19:15 á Þriðjudagskvöld. 

Miðasala á leikinn er á Stubb

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Kristófer Ingi Kristinsson skoraði frábæra þrennu í 1:4 sigri Blika á Samsung í fyrra: