Næsti leikur Blika í Bestu deildinni er á miðvikudaginn. Þá ferðast okkar menn suður með sjó til að mæta frísku liði Keflvíkinga.
Flautað verður til leiks á HS Orku vellinum í Keflavík kl.18:00!
Miðasala á Stubbur app: Stubbur
Staðan í Bestu deildinni fyrir leikinn:
Tölfræði
Lið Keflavíkur (áður ÍBK) er sá andstæðingur sem Breiðablik hefur oftast leikið gegn frá því að Breiðablik byrjaði að keppa í fótbolta árið 1957 - leikurinn í Keflavík á miðvikudaginn verður 134. mótsleikur liðanna frá upphafi.
Efsta deild
Innbyrðis leikir í A-deild frá upphafi (1971) eru 63 leikir. Allt jafnt - Blikasigrar eru 24 gegn 24 og jafnteflin eru 15.
Efsta deild í Keflavík
Innbyrðis leikir í A-deild í Keflavík er 31 leikur - Blikasigrar eru 10 gegn 15, jafnteflin eru 6.
Frá 2006 eru leikirnir 14. Blikasigrar eru 7 gegn 4, jafnteflin eru 3.
Síðustu þrír í efstu í Keflavík: Síðustu þrír í efstu í Keflavík:
Breiðablikshópurinn
Leikmannahópur Breiðabliks 2026
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn Keflavík er fæddur og uppalin á Siglufirði, flutti í Kópavoginn tvítugur og hefur búið í Salahverfinu síðan 2001. Samkvæmt KSÍ spilaði spáblikinn 178 leiki með KS, ÍBV, FH og Val skoraði í þeim 57 mörk sem því miður er fjórum mörkum færra en Ívar Sigurjóns, síðasti spáBliki var með. Siglfirðingurinn hefur orðið mikill Bliki í gegnum börnin sín sem hafa verið að æfa með Blikum síðan 2012, en Kristján L. Möller sonurinn er nú í 2. fl. og Tinna María í 4. fl. Einnig hefur eiginkonan Guðrún Drífa verið í Aðalstjórn Breiðabliks s.l 4 ár og er að hætta í sumar. Svo núna í mars var Blikinn skipaður í meistaraflokks ráð karla hjá Breiðabliki, þannig að það má segja að ferill okkar fjölskyldunnar í Breiðablik sé í hámarki þessi misserin.
Það virðist ljóst að ferill þjálfarans Ólafs Inga hafi náð lengra og meira flugi en minn, en náði hann e-n tímann að bjarga stigi á Akranesi?
Jóhann Möller - Hvernig fer leikurinn?
Þessi leikur er fyrsta bananahýðið í sumar. Þetta er leikur sem á pappír á að vinnast, en eins og við þekkjum þá höfum við stundum átt erfitt með að loka svona leikjum. Bananahýðið felst í því að samkvæmt öllu eigum við að vinna, en sagan segir okkur að það hefur oft verið snúið að fylgja eftir góðum leikjum gegn sterkari liðum með sigri gegn þeim sem sitja neðar í töflunni.
Og einmitt þar erum við núna. Keflavík hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum sínum, báðum á útivelli, og fáir spá þeim góðu gengi í sumar. En það sem gerir þennan leik erfiðari en ella er að þetta er fyrsti heimaleikur Keflavíkur í Bestu deildinni eftir nokkra fjarveru. Þeir munu eflaust mæta gríðarlega grimmir líkt og í bikarúrslitaleik og við þurfum að vera minnug að Keflavík sló okkur út úr bikar hér um árið þannig að við þurfum líklega að þjást aðeins í þessum leik til að sigla þessu heim.
Ég hef hins vegar verið hrifinn af fyrstu tveimur leikjum Blika hvað varðar að Ólafur Ingi hefur náð að blása smá dólg í okkar menn — og það hefur oft verið akkilesarhællinn í svona leikjum, að við höfum einfaldlega verið of linir og kurteisir. Það þarf stundum smá dólg suður með sjó.
Veðrið í Keflavík hefur líka oft verið óvinur liða sem spila góðan fótbolta, því þar er ekki alltaf logn eins og á Sigló. En spáin er góð, þannig að það verður ekki afsökun í þetta skiptið.
Með þessum forsendum, og ef Óli heldur hugarfarinu sterku hjá okkar mönnum, þá fer þessi leikur 2–0 fyrir Blika. Ágúst Orri skorar fyrra markið og Kristófer það síðara.
Það væri jafnframt mjög jákvætt að halda hreinu, því varnarleikurinn er að smella vel saman með nýja miðverðinum, Ívar hefur komið sterkur inn með gott hugarfar og ekki síður sem leiðtogi og það skemmir ekki að hann er örfættur. Hann og Ásgeir Helgi, munu halda búrinu hreinu með Antoni Ara, sem er ekki síður mikilvægt.
Áfram Breiðablik!

SpáBliki leiksins Jóhann Möller
Dagskrá
Flautað verður til leiks á HS Orku vellinum í Keflavík kl.18:00!
Miðasala á Stubbur app: Stubbur
Áfram Blikar! - Alltaf, alls staðar!
/PÓÁ
Klippur frá síðustu heimsókn okkar manna til KEF í Bestu deildinni í lok maí 2023.