Miðasala á leikinn er á Stubb.
Græna stofan opin. Ískaldur á krana og lukkuhjól fyrir þá allra hörðustu. Bestu borgararnir í sjoppunni. Naut og béarnaise frá Brasserie Kársnes vagninum. Treyjur, treflar og fleira í Blikaskúrnum.
Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á mánudag kl.19:15!
Tölfræði
Innbyrðis keppnisleikir liðanna eru 46 frá fyrsta leik árið 1977. Blikar leiða með 29 sigra gegn 6, jafnteflin eru 11. Leikir í A-deild eru 21 - blika sigar eru 10 gegn 3, jafnteflin eru 3 - heimaleikir okkar manna gegn Þór eru. Blika sigar er 5 gegn 3, jafnteflin er 3.
Árið 2014
Nýliðar Þórs eru aftur komnir í efstu deild eftir fjarveru síðan 2014, og árið reyndist viðburðaríkt á margan hátt.
Veturinn setti mark sitt á undirbúning liða, þar sem fótboltavellir lágu lengi undir snjó og krapa. Kópavogsvöllur var engin undantekning; í febrúar var völlurinn svona og þegar kom að fyrsta heimaleiknum í byrjun maí var hann enn ekki tilbúinn. Sá leikur var því færður á Stjörnuvöll í Garðabæ, eins og Heisi fer yfir í umfjöllun sinni hér.
Þjálfarabreytingar hjá Blikum. Ólafur H. Kristjánsson hætti sem aðalþjálfari Breiðabliks til að taka við úrvalsdeildarliðinu FC Nordsjælland í Danmörku. Hann hafði stýrt Blikum frá miðju ári 2006 og unnið bæði Bikarmeistaratitilinn 2009 og Íslandsmeistaratitilinn 2010. Heisi Heison tók saman myndband um feril Ólafs og á Blikar.is má finna ítarlegt viðtal við hann. Heisi Heison setti saman þetta myndband um Ólaf. Viðtal við Ólaf á Blikar.is
Aðstoðarþjálfari Ólafs, Guðmundur Benediktsson, tók við liðinu sem aðalþjálfari og fékk Willum Þór Þórsson sér til aðstoðar. Sjá frétt: Gummi Ben og Willum teknir við – Blikar.is
Um haustið var svo Arnar Grétarsson ráðinn aðalþjálfari Breiðabliks og Kristófer Sigurgeirsson tók við hlutverki aðstoðarþjálfara. Sjá fréttir: Arnar Grétarsson tekur við Breiðabliki og Kristófer Sigurgeirsson ráðinn aðstoðarþjálfari Breiðabliks – Blikar.is
⏱️ 11 ár, 9 mánuðir og 25 dagar frá síðasta leik gegn Þór
Í frétt á mbl.is 2. júlí 2014 sagði Guðmundur Benediktsson, þá þjálfari Breiðabliks, eftir 3:2-sigur á Þór:
„Við erum gríðarlega glaðir,“ sagði Guðmundur Benediktsson eftir leikinn. Þetta voru fyrstu stig Breiðabliks í deildinni þetta tímabil og því kærkomin. Hann bætti við að ekkert yrði gefið í næstu leikjum og leikmenn yrðu að leggja allt í verkefnið.
Viðtal við Gumma Ben á mbl.is eftir sigurleikinn gegn Þór:
Síðustu þrjár efstu deildar heimsóknir Þórsara á Kópavogsvöll:
Breiðabliksliðið
Í hópi getstanna eru tveir leikmenn sem þekkja vel til í Kópavoginum. Ágúst Eðvald Hlynsson spilaði 55 mótsleiki með Blikum árin 2016 og 2023. Og Atli Sigurjónsson spilaði 49 mótsleiki árin 2015-2017.
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn Þór er alinn upp í hvömmunum i Kópavogi og einnig í vesturbæ Kópavogs á seinni hluta unglingsáranna. Fótboltinn varð stór hluti af lífi hans frá 6 ára aldri þegar hann fylgdist með uppbyggingu Kópavogsvallar af svölunum heima hjá sér í Fífuhvamminum. Fljótlega upp úr því varð boltastrákastarfið að fastri iðju á sumrin og hann varð grænn í gegn. Fótbolta iðkaði hann og æfði stuttan tíma með 5fl. Breiðabliks en þó mest með hverfisfélaginu á "Valló" velli (völlur í Hvömmunum sem er nefndur eftir stórblikanum Valgarði Guðjónssyni Fræbbbli).
Eftir áralanga dvöl erlendis og nokkrar barneignir voru krakkarnir sendir til æfinga í yngri flokkum Breiðabliks. Ástundun leikja hófst aftur fyrir alvöru og sjálfboða-liðastarfið varð aftur að veruleika. Á því sviði voru mörg skemmtileg verkefni s.s. seta í unglingaráði, dómgæsla yngri og eldri flokka, hann var dómarastjóri um árabil ásamt mörgum öðrum gefandi verkefnum. Old boys fótbolti Blikaklúbbsins varð einnig sterkur þáttur í tilveru SpáBlikans.
Snorri Páll Einarsson - Hvernig fer leikurinn?
Leikurinn verður erfiður viðureignar hjá Blikum þar sem greinilegt er að Þór koma vel undirbúnir í deildina með tvo sigra á móti sterkum mótherjum. Það er von á hörkuleik þar sem liðin munu taka tíma í að máta sig gegn hvort öðru. Leiknum mun ljúka með 3-1 sigri eftir að Blikarnir ná taktinum og yfirhöndinni í seinni hálfleik.
Áfram Breiðablik!
SpáBlikinn Snorri Páll með Breiðabliksfjölskyldunni
Dagskrá
Græna stofan opin. Ískaldur á krana og lukkuhjól fyrir þá allra hörðustu. Bestu borgararnir í sjoppunni. Naut og béarnaise frá Brasserie Kársnes vagninum. Treyjur, treflar og fleira í Blikaskúrnum.
Miðasala á leikinn er á Stubb.
Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á mánudag kl.19:15!
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ