Það er komið að síðari leik Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla, í hinu hefðbundna 22 leikja móti áður en deildinni er skipt í efri og neðri hluta. Fyllum stúkuna og sækjum þrjú stig!

Fyrri leikur liðanna var opnunarleikur mótsins, spilaður í Víkinni 10. apríl, og endaði með 1:1 jafntefli. 

J
Víkingur
1 1
Breiðablik
A-deild 1. umferð Víkingsvöllur 10.04.2026
3
19

Leiðir liðanna frá opnunarleiknum hafa legið í ólíkar áttir. Fyrir leikinn er taplaust lið Víkings á toppi deildarinnar með 34 stig 12 leikjum - okkar menn eru í 4. sæti með 19 stig eftir 11 leiki.

Sagan & Tölfræði

Síðustu 5 ár hafa einkennst af mikilli baráttu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.

2021

Blikar eru með níu fingur á bikarnum en lygileg röð atvika í næst síðustu umferð, þar sem vitaspyrnur koma við sögu, verður til þess að Breiðablik missir naumlega af titlinum með 47 stig - einu stigi minna en Víkingur.

2022

 Breiðablik vinnur Bestu deildina með yfirburðum - hala inn 63 stig í 27 umferðum -  Víkingur endar í 2. sæti með 48 stig.

2023

Víkingur vinnur deildina með yfirburðum. Hala inn 66 stig. Það ár er liðið okkar á fullu í Evrópukeppnum UEFA sem skilar Breiðabliki alla leið inn í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA - fyrst íslenskra karlaliða. Blikaliðið endar Íslandsmótið í 4. sæti með 41 stig.

2024

Breiðablik stendur uppi sem Íslandsmeistari eftir hreinan úrslitaleik við Víkinga í Víkinni í lokaleik mótsins. Lokaniðurstaða. Breiðablik 62 stig. Víkingur 59 stig.

2025

Víkingur vinnur deildina með 57 stig. Breiðabliksliðið er aftur á fullu í Evrópukeppnum UEFA sem skilar Blikaliðinu þátttökurétti í breyttri Sambandsdeild UEFA sem lengdi keppnistímabilið til 18. desember 2025. Blikaliðið endar mótið með 42 stig.

Niðurstaðan í fjölda titla síðustu 5 ár 3:2 fyrir Reykjavíkur Víkinga.

Það er ljóst að keppnistímabilin sem liðin tvö taka þátt í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA - Breiðablik 2023 - og deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA - Víkingar 2024 og Breiðablik 2025 - að leikjaálagið hefur áhrif á stigaöflun í Bestu deildinni. Þannig t.d. er stigaöflun Blika aðeins 41 stig árið 2023 og 42 stig árið 2025, en 63 og 62 stig Íslandsmeistaraárin 2022 og 2024.

Stigaöflun liðanna árin 2021-2025:

SAGAN

Innbyrðis mótsleikir liðanna, fyrst árið 1957, eru 102.

Blikar leiða með 41 sigur gegn 35 - jafnteflin eru 26. 

Innbyrðis leikir í A-deild, fyrst 1972, eru 58. Árangurinn skiptist jafnt á milli liðanna.

Blikar leiða með sem nemur einum sigri, hafa unnið 20 leiki gegn 19 - jafnteflin eru 19. 

Innbyrðis leikir í A-deild á Kópavogsvelli, fyrst 1972*, eru 29.

Blikasigrar eru 13 gegn 6 - jafnteflin eru 10. 

*fyrsti heimaleikurinn gegn gestaliðinu var leikinn á Melavellinum í Reykjavík 17.7.1972. Kópavogsvöllur var vígður árið 1975.

20 ár samfellt í efstu deild (2006–2025)

Breiðablik spilaði fyrst KSÍ mótsleik í 2.deild árið 1957. Leikirnir þetta fyrsta keppnistímabil UBK (Ungmennafélagið Breiðablik Kópavogi) voru fjórir: Þróttur R., ÍBK (Íþróttabandalag Keflavíkur), ÍS (sameinað lið Suðurnesja) og Víkingur R. Leikurinn, sem var heimaleikur Víkinga, fór fram á Melavellinum í Reykjavík miðvikudaginn 17.7.1957 kl.20:30. 

Breiðablik vann sig fyrst upp í efstu deild (1.deild) eftir yfirburðatímabil í 2.deildinni árið 1970. Frá 1971 hefur Blikaliðið leikið 40 tímabil, af 55 mögulegum, í efstu deild þar af samfellt 20 keppnistímabil í röð eftir sannfærandi sigur í næst efstu deild árið 2005. Leikir liðsins þessi 20 ár eru 448 - 217 sigrar - 112 jafntefli - 119 töp.

Markahæstir í núverandi leikmannahópi Blika eru: Kristinn Steindórsson/60 mörk - Höskuldur Gunnlaugsson/56 mörk - Viktor Karl Einarsson/30 mörk - Aron Bjarnason/23 mörk - ​​Kristófer Ingi Kristinsson/19mörkAndri Rafn Yeoman/16 mörk. 

Árangur Breiðabliks síðustu 20 ár

  • Íslandsmeistarar: 2024, 2022, 2010. Silfur: 2021, 2019, 2018, 2015, 2012.

  • Bikarmeistarar: 2009,  (1971, 2018).

  • Deildabikarmeistarar: 2024, 2015, 2013. Silfur: 2010, 2009.

  • Meistarakeppni KSÍ: 2025, 2023.

  • Vormót: Fótbolti.net mót: 2021, 2019, 2015, 2013, 2012. Þungavigtarbikarinn: 2025.

Af 12 félögum í Bestu deildinni 2026 er KR eina liðið sem hefur ekki spilað í næst efstu deild frá síðustu aldamótum. Þór og Keflavík eru að koma upp úr næst efstu deild. ÍBV var í næst efstu deild 2024, ÍA 2022, Fram 2018, KA 2015, Víkingur R., 2013, Stjarnan 2008, Breiðablik 2005, Valur 2004 og FH árið 2000. 

Innbyrðis viðureignir Breiðabliks og Víkings í A-deild árin 2006-2026 eru 34.

Blikar leiða með 14 sigra gegn 10 - jafnteflin eru 10. 

Innbyrðis viðureignir liðanna í A-deild á Kópavogsvelli árin 2006-2026 eru 17.

Blikar leiða með 9 sigra gegn 5 - jafnteflin eru 3.

Síðustu fimm leikir liðanna í Bestu á Kópavogsvöll í hefðbundnu 22 leikja móti:

S
Breiðablik
3 1
Víkingur
A-deild 10. umferð Kópavogsvöllur 01.06.2025
12
1
15
J
Breiðablik
1 1
Víkingur
A-deild 14. umferð Kópavogsvöllur 30.05.2024
40
1
13
J
Breiðablik
2 2
Víkingur
A-deild 10. umferð Kópavogsvöllur 02.06.2023
46
1
28
J
Breiðablik
1 1
Víkingur
A-deild 17. umferð Kópavogsvöllur 15.08.2022
28
15
S
Breiðablik
4 0
Víkingur
A-deild 15. umferð - Stöð 2 Sport Kópavogsvöllur 02.08.2021
78
28

Hópurinn

Í leikmannahópi gestaliðsins eru nokkrir leikmenn sem hafa spilað meistaraflokksleiki með Breiðabliki. Nýjasti leikmaður gestaliðsins, Aron Snær Friðriksson, og Karl Friðleifur Gunnarsson eru uppaldir hjá Breiðabliki. Davíð Örn Atlason og Róbert Orri Þorkelsson hafa báðir spilað með Blikum. Og þjálfarateymi Víkinga er markmannsþjálfarinn Hajrudin Cardakilja sem varði mark Breiðabliks með miklum árangri frá 1992 til 1996 eftir að flúið heimaland sitt vegna stríðsátaka og kom til okkar fyrir keppnistímabilið 1992. Hann á 107 mótsleiki að baki í Breiðablikstreyjunni.

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Leikmannahópur Breiðabliks 2026

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn Víkingi flutti í Kópavoginn haustið 1961 þá 10 ára gamall eftir að hafa varið fyrstu bernskuárunum í sveit á Suðurlandi. Þrátt fyrir að heimili hans væri austast í austurbænum fór hann að venja komur sínar á Vallargerðisvöllinn á fótboltaæfingar hjá Frímanni Gunnlaugssyni. Æfingsókn spáBlikans var stopul alla yngri flokkana og ljóst að hann stefndi ekki á afreksmennsku í íþróttinni. Segja má að skipulagðri knattspyrnuiðkun hafi lokið á fyrsta ári í 2. flokki.

Um 1980 lágu leiðir spáBlikans og Guðna Stefánssonar saman en Guðni var á formaður knattspyrnudeildar. Tókst Guðna að fá SpáBlikann til að mæta á aðalfund deildarinnar haustið 1981 og var hann þá útnefndur í unglinganefnd. Á næsta rúmlega áratug sat hann fyrst í unglingnefnd deildarinnar og síðar í stjórn og var formaður deildarinnar um skeið. Á undanförnum áratugum hefur hann sem verkfræðingur unnið að ýmsum skipulags- og framkvæmdaverkefnum á svæði Breiðabliks í Kópavogsdal.

Breiðablikssæðið. Á myndinni lengst til vinstri takast í hendur fyrirliðar Breiðabliks og Fram þeir Hilmar Sighvatsson og Pétur Ormslev fyrir upphafi vígsluleiks Sandgrasvallarins 26. janúar 1991. 

Þorbergur Karlsson - Hvernig fer leikurinn?

Mér er í fersku minni úrslitaleikur Víkings og Breiðabliks í Bikarkeppninni sem fram fór á Melavellinum 9. nóvember 1971. Víkingur vann leikinn 1:0. Ég horfði á leikinn úr glugga á Háskóla Íslands og það situr enn í mér súrt tapið. Undanfarin ár hafa leikir þessara félaga í Bestu deildinni einkennst af mikilli spennu bæði fyrir leik og ekki síður í leikjunum sjálfum. Ég hef trú á því að leikurinn verði jafn og spennandi en að lokum hafi Breiðablik 2:1 sigur. Kannski verða umsagnir íþróttafréttamanna þær sömu og eftir leikinn 1971: „Bæði lið sýndu góð tilþrif í fyrri hálfleik en leikurinn varð þófkenndur í þeim síðari“.

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Þorbergur Karlsson og eiginkonan, Jónína A Sanders, í Moskvu 2018 á leið á leikinn Ísland - Agentína.

Dagskrá

Jón og Örn taka vel á móti ykkur í Blikaskúrnum og verða með tilboð á stuðningsmannafatnaði ásamt nýjum vörum. Óli mætir með Brasserie Kársnes vagninn og býður upp á sitt víðfræga naut og bérnaise. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.

Miðasala á leikinn er á Stubb.

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á fimmtudaginn kl.19:15!

/PÓÁ

Breiðablik 3 - Víkingur 1 | Tobias Thomsen átti stórleik í sigri Breiðabliks í 10. umferð 1. júní í fyrra: