Við fáum góða heimsókn á föstudaginn þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson mætir á Kópavogsvöll með eldsprækt KR‑lið í 8. umferð Bestu deildar karla. Stigataflan talar sínu máli: KR er í 2. sæti með 19 stig eftir 7 leiki. Blikliðið, í 4. sæti með 12 stig, hefur því kjörið tækifæri til að færa sig upp töfluna.

Sagan & Tölfræði

Innbyrðis mótsleikir KR og Breiðabliks frá upphafi eru 106 leikir. KR leiðir með 50 sigra gegn 26 - jafnteflin eru 29. Fyrsti keppnisleikur liðanna var heimaleikur Blika í Bikarkeppni KSÍ 8.september 1964. Leikið var á Vallargerðisvelli í vesturbæ Kópavogs. 

Efsta deild frá 1971

Í 81 leik liðanna í A-deild hefur KR yfirhöndina með 36 sigra gegn 20 sigrum okkar manna - jafnteflin eru 24. 

Í 41 leik liðanna í A-deild á Kópavogsvelli leiðir KR með 20 sigra gegn 10 - jafnteflin eru 9. Frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006 leiðir KR með 12 sigra gegn 3 - jafnteflin eru 5.

 Frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006 leiðir KR með 12 sigra gegn 3 - jafnteflin eru 5.

Síðustu 5 viðureignir liðanna á Kópavogsvelli í 22 leikja móti

J
Breiðablik
3 3
KR
A-deild 5. umferð Kópavogsvöllur 05.05.2025
50
1
12
S
Breiðablik
4 2
KR
A-deild 15. umferð Kópavogsvöllur 21.07.2024
2
10
T
Breiðablik
3 4
KR
A-deild 18. umferð Kópavogsvöllur 06.08.2023
1
10
S
Breiðablik
4 0
KR
A-deild 12. umferð Kópavogsvöllur 23.06.2022
1
17
T
Breiðablik
0 2
KR
A-deild 1. umferð - Stöð 2 Sport Kópavogsvöllur 02.05.2021
40
1
19

Hópurinn

Okkar leikmaður Kristinn Jónsson hefur spilað með Vesturbæjarliðinu. Í núverandi leikmannahópi gestanna er Galdur Guðmundsson. Hann kom til okkar í 4. flokki frá ÍBV. Galdur spilaði 13 meistarflokksleiki með Blikum árið 2022. 

Þjálfari KR, Óskar Hrafn Þorvaldsson, var hjá Breiðabliki í nokkur ár. Óskar tók við Breiðabliksliðinu fyrir keppnistímabilið 2020 og sinnir því starfi til loka Bestu deildarinnar árið 2023. Óskar skilar Breiðabliksliðinu í 4. sæti árið 2020 og er aðeins hársbreidd frá því að vinna Íslandsmeistaratitilinn árið 2021. Undir stjórn Óskars verður Breiðablik Íslandsmeistari með yfirburðum 2022, og árið 2023 nær Breiðabliksliðið þeim áfanga að verða fyrsta íslenska karlalið sem kemst í riðlakeppni á Evrópumóti UEFA. 

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn KR er fyrrum leikmaður Breiðabliks og grjótharður Bliki í rúmlega 30 ár. Hann fluttist í Kópavoginn 1996 nánar tiltekið á Sæbólsbrautina í mikið Blikahús sem Einar Hauksson byggði og fyrrum leikmaður Blika bjó í íbúð í kjallara hússins. Lazorik sjálfur. Spáblikinn spilaði með félaginu frá 1996-2007 og lék tæplega 200 mótsleiki og skoraði slatta af mörkum.

"Inngrip ritstjórnar. SpáBliki leiksins, Kristján Óli Sigurðsson, lék 187 mótsleiki og skoraði 43 mörk í grænu Breiðablikstreyjunni frá 1999 til 2007. Myndir f.v.: Kristján Óli fyrir miðju við afhendingu Deildarbikars KSÍ 2004. Aðdragandi að öðru marki Breiðabliks í 5:1 sigri á HK í B-deildinni 2004. Breiðablik sigurvegari í B-deild árið 2005."

Kristján Óli Sigurðsson - Hvernig fer leikurinn?

Breiðablik - KR er einn af stórleikjum sumarsins. Óskar Hrafn besti þjálfari í sögu félagsins er að koma í heimsókn í annað sinn eftir dvöl sína í Smáranum. Þetta verður hörkuleikur en mín tilfinning er að það verður nóg af mörkum og Blikar hafi þetta 3-2 með 2 mörkum frá Kristófer Inga og Ágúst Orri með eitt. Fyrsta tap KR-inga staðreynd á föstudagskvöld.

Áfram Breiðablik!

SpáBliki leiksins Kristján Óli Sigurðsson

Dagskrá

Græna stofan opin. Ískaldur á krana og lukkuhjól fyrir þá allra hörðustu. Bestu borgararnir í sjoppunni. Naut og béarnaise frá Brasserie Kársnes vagninum. Treyjur, treflar, myndir og fleira í Blikabúðinni.

Miðasala á leikinn er á Stubb. 

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.19:15! 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

Síðasta heimsókn KR á Kópavogsvöll, í byrjun maí í fyrra, var sex marka leikur sem endaði með jafntefli eftir að Blikar komust yfir með tveimur mörkum frá Tobias Thomsen: