Loksins heimaleikur
Eftir þrjá útileiki í röð snúa Blikar loksins aftur heim á Kópavogsvöll. Síðasti heimaleikur var hinn æsispennandi 6–3 sigur gegn KR í 8. umferð Bestu deildarinnar þann 22. maí. Síðan þá hefur Blikaliðið leikið þrjá leiki á útivelli: Tap gegn Fram 29. maí – Jafntefli við Stjörnuna 16. júní – Sigur á Ægi í Mjólkurbikarnum 12. júní. Nú er komið að því að fylla stúkuna og sækja stig á okkar heimavelli.
Ívar Örn mætir KA í fyrsta sinn
Í leiknum gegn KA stígur Ívar Örn Árnason inn í sérstakt augnablik á ferlinum – þetta verður í fyrsta sinn sem hann mætir gamla félaginu sínu í efstu deild. Ívar lék með KA í fjölda ára og er fimmti leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild frá upphafi, sem segir sitt um mikilvægi hans fyrir Akureyrarliðið. Hann var lykilmaður í velgengni KA á síðustu árum, leiddi liðið meðal annars til bikarmeistaratitils árið 2024 og átti stóran þátt í sterku Evrópugengi þeirra sama ár.
Sagan & Tölfræði
Keppnisleikir Breiðabliks og KA í öllum mótum eru 57 leikir. Vinningshlutfallið fellur með okkur: 37 sigrar gegn 12 - jafnteflin eru 8.
Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 31 leikur. Blikar hafa unnið 21 leik gegn 4 - jafnteflin eru 6.
Efsta deild á Kópavogsvelli
Á Kópavogsvelli eru leikirnir 15. Blikar með 11 sigra, 1 tap og 3 jafntefli.
Síðustu 5 leikir gegn KA á Kópavogsvelli í efstu deild:
Hópurinn
Okkar maður Ívar Örn Árnason er fimmti leikjahæsti maður KA í efstu deild frá upphafi og var fyrirliði liðsins síðustu tímabil. Og framkvæmdastjóri KA, Sævar Pétursson, er fyrrverandi leikmaður Blika með 119 mótsleiki og 23 mörk.
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn KA flutti í Kópavog fjögurra ára gamall og ólst upp í austurbænum þar sem fótboltinn varð fljótt stór hluti af lífinu. Strákarnir í hverfinu léku sér mikið í fótbolta og var SpáBlikinn fljótlega dreginn á æfingar á Vallargerðisvöll, þangað sem við gengum úr austurbænum. Blikinn spilaði upp alla yngri flokkana, varð Íslandsmeistari með 3. flokki og bikarmeistari með 2. flokki áður en hann hóf að leika með meistaraflokki 18 ára gamall. Á ferlinum spilaði hann einnig eitt tímabil með Þór Akureyri og eitt með Augnabliki. Blikinn lagði skóna á hilluna árið 1987 þegar hann flutti til Danmerkur í nám, en lék þar með Vejgaard Boldklub samhliða námi.
Fótboltinn hefur alltaf verið stór hluti af fjölskyldulífinu. Synirnir þrír hafa allir spilað í yngri flokkum Breiðabliks og tveir þeirra orðið Íslandsmeistarar með meistaraflokki félagsins. Eiginkonan, Fjóla, hefur ávallt verið öflugur stuðningsmaður og mætt dyggilega á leiki yngri flokka og meistaraflokks í gegnum árin. Blikinn tók einnig virkan þátt í starfi yngri flokka sem umsjónarmaður. Enn í dag fylgist hann af miklum áhuga með fótboltanum – bæði hér heima og í ensku úrvalsdeildinni, þar sem hann heldur með Crystal Palace. Breiðablik hefur verið rauði þráðurinn í lífi hans – sem leikmaður, foreldri, sjálfboðaliði og stuðningsmaður.
Sigurjón Rannversson spilaði 108 mótsleiki með meistaraflokki Breiðabliks á árunum 1976–1987 og skoraði í þeim 11 mörk. Hann varð Íslandsmeistari með 3. flokki árið 1974 og bikarmeistari með 2. flokki áður en hann hóf að leika með meistaraflokki, þá 18 ára gamall. Sigurjón í leik gegn ÍBV á Kópavogsvelli árið 1985.
Sigurjón Rannversson - Hvernig fer leikurinn?
Breiðablik 3 - KA 1. Eftir að hafa fengið 4 mörk á okkur á móti bæði Stjörnunni og Fram í Bestu deildinni trúi ég að þjálfarinn og strákarnir fari vel yfir varnarleikinn og bæti úr því á móti KA.
Áfram Breiðablik!
SpáBlikinn með fjölskyldu á merkisdegi á Kópavogsvelli árið 2022
og synirnir þrír, Viktor, Oliver og Rannver á öðrum merkisdegi í Víkinni í október 2024.
Dagskrá
Græna stofan opin. Ískaldur á krana og lukkuhjól fyrir þá allra hörðustu. Bestu borgararnir í sjoppunni. Treyjur, treflar, myndir og fleira í Blikabúðinni.
Miðasala á leikinn er á Stubb.
Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.18:00 á sunnudaginn!
PÓÁ
Atvik og mörk úr síðustu viðureign Breiðabliks og KA á Kópavogsvelli. Leikurinn í fyrra endaði með svekkjandi 1–1 jafntefli. Ívar Örn Árnason var potturinn og pannan í vörn KA, en Viktor Örn Margeirsson virtist hafa tryggt okkur sigur á lokamínútum leiksins. Áttu Blikar að fá víti? Átti mark Viktors að standa?