Miðasala á leikinn er á Stubb. 

HLERAGRILL - UPPHITUN FYRIR LEIKINN GEGN FH

Endurtökum leikinn frá árinu 2022! Í anda Tailgate sem Bandaríkjamenn hafa gert í fjölda ára fyrir leiki í ameríska fótboltanum þá hvetjum við Blika til að mæta í Smárann á sínum bíl. Opna hlerann og grilla, drekka, djúpsteikja, baka eða hvað svo sem þið viljið beint úr skottinu. Hækkum í gleðinni og búum til alvöru stemmningu fyrir þennan risa leik á í móti FH í Bestu deildinni. Takmarkað magn stæða í boði! Skrá bíl hér. 

Sagan & Tölfræði

FH er eitt aðeins þriggja liða sem Breiðablik hefur mætt í meira 130 mótsleikjum. Hin liðin eru Keflavík(ÍBK), ÍA og einnig leikir gegn ÍBH(KRH),en FH og Haukar spiluðu undir því samheiti fyrstu árin í Litlu bikarkeppninni sem var æfingarmót haldið á Suðvesturhorninu utan Reykjavíkur frá 1961 til 1995. Keppnin var stofnuð að frumkvæði Alberts Guðmundssonar til að jafna stöðu liða utan höfuðborgarinnar sem tóku ekki þátt í Reykjavíkurmótinu. Mótið var lagt niður þegar Deildarbikarinn var stofnaður árið 1996 og tók við sem formlegt æfingamót fyrir Íslandsmótið. Nánar hér. 

Jafnt á tölum

Í 132 innbyrðis mótsleikjum liðanna frá upphafi, fyrst 1964, leiða FH-ingar með 59 sigra gegn 48.

Tölfræði liðanna í efstu deild er jöfn. Í 65 leikjum liðanna í A-deild frá 1976 leiðir Fimaleikafélagið sem nemur einum sigri.

Í 32 leikum í A-deild á Kópavogsvelli frá 1976 er jafnt á öllum tölum

Sama jafnræði hefur verið á milli liðanna þessi 20 ár sem Breiðablik hefur verið samfellt í efstu deild. Í 21 heimaleik hafa Blikar unnið 9 sinnum en Fimleikafélagið 10.

FH fyrsta gestaliðið á löglegum Vallargerðisvelli

13. júní árið 1964 var Vallargerðisvöllur vígður sem löglegur keppnisvöllur fyrir neðri deildir eftir mikinn undirbúning - völlurinn var sléttaður og lagfærður. Bæjarstjórn Kópavogs, undir forystu Hjálmars Ólafssonar, vígði völlinn með því að sparka knettinum til leikmanna. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli. Það var markahrókurinn Jón Ingi Ragnarsson sem skorði mark Blika. 

J
Breiðablik
1 1
FH
B-deild A-riðill Vallargerðisvöllur 13.06.1964
4

Fyrsti leikur gegn FH í A-deild var á Kópavogsvelli

Árið 1976 léku liðin fyrst innbyrðis í A-deild á Kópavogsvelli í leik sem Blikar unnu 3:1. Snillingurinn Hinrik Þórhallsson skoraði þrennu í leiknum. 

S
Breiðablik
3 1
FH
A-deild 15. umferð Kópavogsvöllur 22.08.1976
1

Síðustu 5 gegn FH í deild á Kópavogsvelli

T
Breiðablik
4 5
FH
A-deild 19. umferð Kópavogsvöllur 17.08.2025
1
9
S
Breiðablik
2 0
FH
A-deild 1. umferð Kópavogsvöllur 08.04.2024
1
17
T
Breiðablik
0 2
FH
A-deild 23. umferð - Efri hluti Kópavogsvöllur 17.09.2023
8
T
Breiðablik
0 2
FH
A-deild 22. umferð Kópavogsvöllur 03.09.2023
1
9
S
Breiðablik
3 0
FH
A-deild 3. umferð Kópavogsvöllur 01.05.2022
28
1
17

Leikmannahópurinn

Í okkar hópi er það Kristinn Steindórsson sem spilað hefur með FH. Og í fyrra lék Dagur Örn Fjeldsted sem lánsmaður hjá FH. 

Hjá FH er Tómas Orri Róbertsson uppalinn Bliki.

Leikmannahópur Breiðabliks 2026

Stuðningsmaðurinn

Spábliki leiksins gegn FH er fæddur og uppalinn í Hlíðunum og spilaði fótbolta hjá Val í gegnum yngri flokkana. Lét svo staðar numið, fyrir utan eitt sumar í „atvinnumennsku“ með Sindra á Höfn í Hornarfirði. Spáblikinn giftist fyrir 40 árum dóttur frumbyggja í bænum og hefur búið alla tíð síðan í Kópavogi. Spáblikinn hefur starfað töluvert fyrir Breiðablik gegnum tíðina, verið formaður körfuknattleiksdeildar, setið í aðalstjórn og komið að ýmsum öðrum verkefnum. Í vikunni var hann kjörinn formaður aðalstjórnar Breiðabliks. Hann vinnur hjá Íslenskum getraunum meðal annars við að spá fyrir um úrslit leikja og því vefst varla fyrir honum að spá um leikinn.

Mynd tekin eftir fyrsta Dyrfjallahlaupið á Borgarfirði eystra sem Arnar vann og ég og Sigrún lukum. 

Pétur Hrafn Sigurðsson - Hvernig fer leikurinn?

Breiðablik hefur fengið fæst mörk á sig í deildinni sem er lykilatriði því vörnin vinnur titla. Engin breyting verður á því í þessum leik og mun Breiðablik sigla heim öruggum 3 – 0 sigri.

SpáBliki leiksins Pétur Hrafn Sigurðsson

Dagskrá

HLERAGRILL frá kl.16:00!. 

Græna stofan opin. Ískaldur á krana og lukkuhjól fyrir þá allra hörðustu. Bestu borgararnir í sjoppunni. Naut og béarnaise frá Brasserie Kársnes vagninum. Treyjur, treflar, myndir og fleira í Blikabúðinni.

Miðasala á leikinn er á Stubb. 

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.19:15! 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Síðasta heimsón FH á Kópavogsvöll varð að 9 marka leik: