Besta deildin 2025: ÍBV - Breiðablik
13.06.2025
Eftir gott hlé er komið að næsta leik í okkar manna í Bestu deild karla 2025. Um er að ræða leik við ÍBV í 11. umferð. Flautað verður til leiks á Þórsvellinum í Vestmannaeyjum kl.16:00 sunnudaginn 15. júní.
Miðasala á leikinn er á Stubb: Stubbur
Leikurinn verður sýndur á BD stöð Sýnar fyrir þá sem ekki komast til Eyja.
Kópacabana sveitin mætir til Eyja með fulla rútu stuðningsmanna. Brottför hópsins er frá Landeyjahöfn kl.13:15! Upphitunarhittingur er á Tanganum kl. 14:00.
Mynd: Frá ferð sveitarinnar til Eyja 2022.
Myndband: Kópacabana sveitin launaði góðar móttökur í Eyjum árið 2015 með söng!
Myndband: Kópacabana sveitin launaði góðar móttökur í Eyjum árið 2015 með söng!
Staðan í Bestu deild karla fyrir leikinn í Eyjum. Eftir öruggan sigur í síðustu umferð er Blikaliðið einu stigi frá toppliðinu:
Sagan & Tölfræði
Fyrsti leikur Breiðabliks og ÍBV var æfingaleikur sem leikinn var í Vestmannaeyjum sumarið 1958 þegar Breiðabliksliðið var að stíga sín fyrstu skref á knattspyrnuvellinum, en knattspyrnudeild Breiðabliks var stofnuð 1957.
Leikur ÍBV og Breiðabliks á laugardaginn verður 104. mótsleikur liðanna frá fyrsta mótsleik árið 1960. Eyjamenn leiða með 43 sigra gegn 38 og jafnteflin er 20. Til viðbótar þessum 103 leikjum eru margir óskráðir leikir liðanna í svonefndri Bæjarkeppni - keppni sem var leikin vor og haust í mörg ár í kjölfar eldgossins í Eyjum 1973, enda mikill vinskapur á milli Kópavogsbæjar og Vestmannaeyja.
Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi eru 64. Blikar leiða með 26 sigra gegn 22 - jafnteflin eru 16.
Efsta deild í Eyjum
Heilt yfir er ÍBV liðið er með yfirhöndina í Eyjum. Frá fyrsta leik liðanna í efstu deild árið 1971 leiða Eyjamenn með 13 sigra gegn 7 - jafnteflin er 12.
Frá 2006
Eftir endurkomu okkar manna upp í efstu deild árið 2006 hefur Breiðabliksliðið náð að jafna árangurinn við heimamenn, enda gengi Blikaliðsins heilt yfir mjög gott frá 2006. Í átt tímabil af nítján hefur Blikaliðið verið í þremur efstu sætum deildarinnar - þarf af þrisvar Íslandsmeistari - og öll árin í efri hlutanum að tveimur árum undanskildum (2008 og 2014). Leikir liðanna í efstu deild í Eyjum frá 2006 eru 14 og allt jafnt, bæði lið með 3 sigra og jafnteflin eru 8.
Blikar hafa ekki náð sigri í síðustu 5 heimsóknum til Eyja – tap í síðasta leik (2023) 0:0 og 1:1 jafntefli í 4 leikjum þar á undan:










Leikmannahópurinn
Í leikmannahópi ÍBV liðsins er það Omar Sowe sem hefur spilað með Breiðabliki. Hann kom til Breiðabliks fyrir Íslandsmeistaraárið 2022 og spilaði 24 mótsleiki og skoraði 4 mörk með Blikum. Omar, sem kom til ÍBV frá Leikni R., varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik með ÍBV undir lok maí og leikur því ekki meiri knattspyrnu á þessu ári. Í Breiðablikshópnum er það Aron Bjarnason sem hefur leikið með Eyjaliðinu. Hann spilaði tvö keppnistímabil með Eyjapeyjum árin 2015 og 2016 en gekk svo til liðs við Breiðabik fyrir keppnistímabilið 2017.
Leikmannahópur Breiðabliks 2025
Stuðningsmaðurinn
Tengsl SpáBlika leiksins gegn ÍBV við Breiðablik ná sjötiu ár aftur í tímann því vorið 1955 var ég mættur út á nýjan Vallargerðisvöll í glænýjum strigaskóm frá Hellas á Skólavörðustígnum. Skóm, sem voru algjörlega búnir eftir sumarið. Á Vallargerðisvöllinn mætti jafnan hópur stráka, flestir nokkrum árum eldri en í þeim hópi voru margir sem síðar urðu skærustu fótbolta- og frjálsíþróttastjörnur Breiðabliks. Blikinn var hinsvegar ekki í þeim hópi, sat hann á varamannbekk upp alla yngri flokkana þar til hann loks hætti þegar komið var upp í annan flokk. Þá loks gerði blikinn sér grein fyrir því að ég kæmist aldrei í liðið. Helsta framlag spáblikans á íþróttasviðinu til félagsins var þátttaka í skákkeppnum ungmennafélaga. Þessar keppnir voru haldnar um nokkurt árabil í kringum 1960. Líklega tapað hann flestum skákum enda oftast langyngsti þátttakandinn. Yngri bræður SpáBlikans urðu hinsvegar vel þekktir varnarjaxlar í vaxandi knattspyrnuliði Breiðabliks á árunum upp úr 1970. Okkar maður var því oft á vellinum og lá því vel við höggi þegar ég var pressaður inn í aðalstjórnina frá árinu 1972 til 1977. Það voru skemmtileg samstarfsár með þekktum Kópavogsbúum sem sátu ýmist í aðalstjórn eða í deildarstjórnum. Þegar nú er litið út um gluggann minn á Kársnesinu sé ég tré sem rís himinhátt til lofts, tré sem ég man sem barn sem örlitla kræklótta hríslu. Þar finn ég og sé sterka samlíkingu með vexti Breiðabliks, litla Ungmennafélaginu sem nú orðið að sigursælum risa í íslensku íþrótta og félagslífi.
Frímann Helgason - Hvernig fer leikurinn?
Auðvitað vinna okkar menn ágætan sigur. Segjum fjögur-eitt.
Ég hef það líka á tilfinningunni að strákarnir úr liði Breiðabliks sem sóttu Eyjarnar heim árið 1958, bæði þeir sem eru lífs og liðnir munu fylgjast vel með leiknum.
Áfram Breiðablik!
SpáBliki leiksins Frímann Ingi Helgason að störfum fyrir Sögufélag Kópavogs.
Dagskrá
Kópacabana sveitin mætir til Eyja. Upphitunarhittingur á Tanganum kl.14:00!
Flautað verður til leiks í Eyjum kl.16:00!
Miðasala á leikinn er á Stubb: Stubbur
Leikurinn verður sýndur á BD stöð Sýnar fyrir þá sem ekki komast til Eyja.
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Tæp 10 ár frá þessum BlikarTV smelli: 3 stig í Höfn a la Heisi