Það er söguleg stund í leik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli. Andri Rafn Yeoman er að spila sinn 500. mótsleik fyrir Breiðablik og er þar með aðeins annar leikmaður í íslenskri knattspyrnusögu til að ná slíkum áfanga með einu og sama félaginu.
Andri Rafn hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Breiðabliks í rúman áratug og er lang leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Andri Rafn hefur leikið allan sinn feril í grænu treyjunni og er þar með einstakt dæmi um tryggð, stöðugleika og fagmennsku.
Ferill hans hófst 5. júlí 2009 þegar hann lék sinn fyrsta mótsleik með meistaraflokki karla í bikarleik gegn Hetti á Kópavogsvelli.
Fyrsti leikur hans í efstu deild kom aðeins viku síðar, 13. júlí 2009, í sigri á liði Grindavíkur í Grindavík.
Síðan þá hefur hann verið ómissandi hluti af liðinu og tekið þátt í öllum helstu áföngum þess.
Mótsleikirnir 500
Andri Rafn hefur orðið tvisvar sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari með Breiðabliki. Hann hefur jafnframt verið lykilmaður í Evrópukeppnum félagsins frá upphafi.
Viðurkenningar & Áfangar
Andri Rafn hefur safnað fjölmörgum leikjaviðurkenningum frá því hann fékk sína fyrstu árið 2014 fyrir 100 leiki. Á myndinni til vinstri er viðurkenningin fyrir 450. mótsleikinn frá Íslandsmeistaraárinu 2024 og til hægri viðurkenning fyrir 400. mótsleikinn frá Íslandsmeistaraárinu 2022.
Andri Rafn að setja met í fjölda deildaleika
Víðir Sig skrifar áfanga Andra í Mbl 8. júlí 2025: Andri Rafn Yeoman setti nýtt met í sögu efstu deildar karla í knattspyrnu á Íslandi þegar hann lék með Breiðabliki gegn Aftureldingu í 14. umferð Bestu deildarinnar síðasta fimmtudagskvöld. Þetta var 309. deildaleikur Andra með Breiðabliki, og þeir hafa allir verið í efstu deild. Þar með er hann orðin leikjahæstur fyrir eitt félag í deildinni. Fyrra metið átti Daníel Laxdal sem lék 308 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild en hann lagði skóna á hilluna á síðasta tímabili. Um leið komst Andri í þriðja sætið yfir þá leikjahæstu í heild sinni í deildinni frá upphafi, með þessa 309 leiki. Staða tíu leikjahæstu manna er nú þannig:
382 Óskar Örn Hauksson, Víkingi R., Stjörnunni, KR og Grindavík
321 Birkir Kristinsson, ÍBV, Fram, ÍA og KA
309 Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki
308 Daníel Laxdal, Stjörnunni
304 Gunnleifur Gunnleifsson, Breiðabliki, FH, HK, Keflavík og KR
299 Finnur Orri Margeirsson, FH, KR og Breiðabliki
294 Gunnar Oddsson, Keflavík, Leiftri og KR
293 Kristinn Jónsson, Breiðabliki og KR
285 Atli Guðnason, FH
283 Haukur Páll Sigurðsson, Val og Þrótti
500. mótsleikurinn
Þessi áfangi er ekki aðeins tölfræði. Hann er vitnisburður um ótrúlega seiglu, ástríðu og órofa tengsl við félagið. Andri Rafn hefur verið leiðtogi innan vallar sem utan, fyrirmynd fyrir unga leikmenn og burðarás í öllum helstu verkefnum liðsins.
500 leikir í grænu treyjunni eru afrek sem mun lifa í sögubókum Breiðabliks um ókomin ár.
Stuðningsmannavefurinn blikar.is óskar þér til hamingju með áfangann, Andri Rafn. Þú ert okkar leikjahæsti – og einn af okkar allra bestu.
/PÓÁ